Ægir - 01.12.1931, Blaðsíða 5
ÆGIR
233
magni innan og utan landhelgislínunnar.
Var próf. Schmidt nú kominn og fór út
með. Var byrjað í Garðssjó um kveldið
og nóttina, en um morguninn (23. júli)
var hann rokinn upp á N, svo að vér
urðum að leita hælis í Hafnaríirði og
liggja þar í 3 daga í stormi. Voru gerð-
ar þar ýmsar rannsóknir á smáfiski. En
þegar veðrinu slotaði, var haldið áfram
með rannsóknirnar í Suðurflóanum þang-
að til þeim var lokið.
26. júlí varð próf. Sehmidt að fara til
Reykjavíkur, til þess að halda þar fyrir-
lestur, en Dana fór næsta morgun aftur
út i flóann, til þess að gera rannsóknir
utan landhelgi (á Sviðinu). Varð ég þá
eftir í landi vegna fyrirlestrarins1. Úlkom-
an af þessum rannsóknum varð lík og
áður (á Dönu og Pór): að meira var
yflrleitt um allan fisk inni í landhelgi,
en utan hennar (aflatölur hefi ég eigi
fengið). Mun nú þessum rannsóknum
þar með lokið og útkoman birt áður
langt um líður.
Eftir fyrirlesturínn fór próf. Schmidt
heim, en »Dana« hélt áfram rannsókn-
unum og lagði af stað (og ég með) norð-
ur fyrir land, 30. júlí. Var farið all-hratt
yfir og aðallega gerðar svifrannsóknir og
leitað að svifseiðum á gömlum stcðvum.
Var margt að ýsu- og lýsuseiðum út af
Látrabjargi, en annars fátt af seiðum við
vesturströndina, þar á meðal einstaka
1) Út af fyrirlestri próf. Schmidts, skal ég
hér benda á, aö pað er af misskilningi sproltiö
sem haft er eftir honum í greininni »Fiski-
rannsóknir« i Ægi 7. tbl. p. á. bls 136, að porsk-
urinn við Bjarnarey og Spitsbergen sé gotinn
og uppalinn hér við land. Norðmenn hata peg-
ar fengið fulla sönnun fyrir pví, með aldurs-
ákvörðunum og merkingum, að sá fiskur er
allur gotinn og vaxinn upp við Noreg (Lófót og
annarsstaðar) og fer pangað til hrygningar.
Enginn fiskur merktur hér hefur veiðst við
Noreg eða Færeyjar, eða öfugt.
þorskseiði. Aftur á móti var margt af
þorskseiðum út af Kögrinu, og úti fyrir
norðurströndinni, vestan Eyjafjarðaráls,
var slangur af þorsk- og öðrum fiska-
seiðum, og hitinn 8—9° í yfirborði, en
fátt sást af síld í uppivöðum á þeim slóð-
um, enda þótt sjórinn væri spegilsléllur.
1. ágúst var farið inn á Siglufjörð til
þess að setja forseta Fiskifélagsíns þar á
land, því að hann hafði fengið þangað
far með skipinu. Yfirgaf ég þar líka skip-
ið, því það hafði þá fengið skipun um
að hraða ferðinni sem mest (féð sem
veitt hafði verið til hennar var nú mjög
þrotið) og fara frá Seyðisfirði eftir3daga
til Færeyja og svo heim.
Á leiðinni þangað voru teknar nokk-
urar stöðvar á vanalegum stöðum, en
samkv. því sem Dr. Táning hefur tjáð
mér, var óvenjulítið af fiskaseiðum á
þessum slóðum nú, enda þótt sjávarhit-
inn væri ekki lágur. Dálítið varafþorsk-
seiðum austur að Sléttu, en úr þvi eng-
in, alla leið til Seyðisfjarðar og var það
því merkilégra, sem talið var fullvíst, að
mikið hefði gotið af þorski við Norður-
land, jafnvel austur á Þistilfirði, i april,
í vor er leið. Pó aB seiðin frá því klaki
hefðu nú verið komin öll burtu afklak-
stöðvunum, þá hefðu þau átt að finnast
sem botnseiði í Vopnafirði eða Seyðis-
firði, en það gerðu þau ekki. Er því
næsta líklegt, að klakið við Norðurland
hafi ekki haft neinn sýnilegan árangur,
sökum of lítils hita í sjónum á þeim
slóðum, eggin ekki klakist eða seiðin
ekki haft sina réttu fæðu í sjónum við
NA-ströndina; þó væri hugsanlegt að eitt-
hvað af eggjunum hefði getað borist suð-
ur fyrir Austurland og klakist þar.
Ég dvaldi á Siglufirði til 5. ágúst og
fræddist þar um margt viðvíkjandi fiski
við Norðurland og fékk lika tækifæri til
að athuga afla frá Skagagrunni. Fór ég