Ægir - 01.12.1931, Side 8
236
ÆGIR
hefur við rannsóknina, er vitanlega slað-
fest þýðing af réttarskjölunum frú hin-
um íslenzka dómstól, er um málið hef-
ur fjallað.
Það er auðséð af því, hvernig Þjóð-
verjar takanúorðið á þessum málum, að
þeim er full alvara með að stemma stigu
fyiir ólöglegum veiðum skipstjóra sinna.
Næst á eftir því, að sannprófa eftir
þeim gögnum er fyrir liggja, hvort ákæra
varðskipsins og þarafleiðandi dómfelling,
hefur verið á rökum byggð, virðast sjó-
dómarnir þýzku leggja mesta áherzlu á
það, hvort skipstjóri hafi vísvitandi ver-
ið valdur að brotinu. Þeir gera höfuð-
mun á vísvitandi broti í þessum efnum,
og því er stafar af vangá eða skorti á
kuunugleika.
Það er að vísu erfitt, og stundum ó-
mögulegt að því er virðist, að komast
að hinu sanna í þessu efni, en þó er
það allt annað fyrir dómstól, sem hefur
nægri sérþekkingu á að skipa við rann-
sókn málsins, heldur en þar sem lítil
eða engin »nautisk« þekking er fyrir
hendi. Hitt er vist að ef rétturinn skeði,
ætti að gera meiri mun en venjulega er
gerður í þessum málum, á tvímælalaus-
um ásetningsbrotum, eins og t. d. land-
helgisveiði með breitt yfir númer skips,
eða á Ijóslausu skipi að nóttu til, og
þeim brotum sem auðsjáanlega stafa af
þekkingarskorti eða af slysni.
Jóhann P. Jósefsson.
Frá skrifst. Fiskifélagsins.
Hermann Þorsteinss on, sem
verið hefur erindreki Fiskifélagsins
í Austfirðingafjórðungi, lét af þeirri
stöðu í byrjun desembermánaðar en
Friðrik Steinsson skipstjóri á
Eskifirði, hefur verið settur til að
gegna henni fyrst um sinn.
Ðráðabirgðalög
um skiptameðferð á búi Síldareinka-
sölu Islands.
Vér Christian hinn tíundi, o. s. frv.
Gjörum kunnugt: Atvinnu- og samgöngu-
málaráðherra Vor hefur tjáð Oss, að síld-
areinkasala íslands hafi orðið fyrir svo
miklum óhöppum og tapi á yfirstand-
andi ári, að hagur hennar standi nú
þannig, að eigi sé annað fyrirsjáanlegt,
en að bú hennar hlyti bráðlega að verða
að takast til gjaldþrotaskipta, ef eigi er
önnur skipun gerð á um meðferð henn-
ar. Telur hann óhjákvæmtlegt að gera
þegar í stað ráðstafanir í þessa átt, þar
sem það sé allmiklum erfiðleikum bund-
ið að skipta búi einkasölunnar með
venjulegri gjaldþrotaskiptameðferð. Þar
sem svo er ástatt, sem að framan greinir,
teljum Vér brýna nauðsyn bera til þess
að gefa út bráðabirgðalög um þetta efni
samkvæmt 23. gr. stjórnarskrárinnar frá
18. maí 1920.
Því bjóðum Vér og skipum þannig:
1. gr. Bú síldareinkasölu íslands skal
tekið til skidtameðferðar. Skiptin fram-
kvæmir skilanefnd tveggja manna, sem
atvinnu- og samgöngumálaráðherra skip-
ar. Skilanefnd kemur í slað stjórnar einka-
sölunnar, og hefur samskonar vaíd og
skyldur að því leyti sem við á.
2. gr. Meðan skiptin standa yfir má
hvorki taka til greina neina kröfu um
gjaldþrotaskipti á búi einkasölunnar, ne
leggja löghald eða löggeymslu á eignii'
hennar eða gera i þeim fjárnám, né aðra
fullnustugerð.
3. gr. Við skiptin skal farið eftir regl-
um þeim, er gilda við gjaldþrotaskiph
um skuldajöfnuð, um ógildingu gerninga.
fjárnáms eða löggeymslu og um skulda-
röð. Öðrum ákvæðum skiptalaganna og