Ægir - 01.12.1931, Side 9
ÆGIR
237
laganna um gjaldþrotaskipti, þeimereigi
lúta að sjálfri skiptaaðferðinni, skal beitt
eftir því sem unnt er.
4. gr. Skilanefnd skal heimilt að taka
lán, ef þörf gerist, til þess að standast
nauðsynlegar greiðslur meðan á skipt-
unum stendur, svo sem flutningsgjöld
og annan kostnað við ráðstöfun óseldr-
ar síldar, enda verði þeir, sem slík lán
veita, forgangskröfuhafar í búinu sam-
kvæmt 82. gr. skiptalaganna.
5. gr. Atvinnumálaráðherra skal heím-
ilt að setja í reglugerð nánari ákvæði
um skiptameðferðina, eftir því sem bin-
ar sérstöku ástæður, sem fyrir hendi eru,
kynnu að gera nauðsynlegt og má í reglu-
gerð þessari vikja frá reglum þeim og
venjum, sem um einkasöluna gilda, eftir
þvi sem hentugt þykir.
Síld sú, sem veidd er eftir 15. nóvbr.
1931, og sem ekki er þegar í vörzlum
einkasölunnar til útflutnings, néhúnhef-
ur haft meðferð á, nema að þvíleyti, að
umboðsmenn hennar kynnu að hafa
framkvæmt skoðun á síldinni til útflutn-
ings, sbr. 14, gr. laga nr. 61, 14. júní
1929, er búi einkasölunnar óviðkomandi.
Setur atvinnumálaráðherra reglur um
flokkun, mat og merking þeirrar síldar,
eftir því sem þurfa þykir. Þó er útflutn-
ingur þessarar síldar því að einsheimill,
að hann komi eigi í bága við hagsmuni
bús einkasölunnar í sambandi við samn-
inga um sölu á síld, sem gerðir hafa
verið af einkasölunni áður en lög þessi
öðluðust gildi, og þarf til slíks útflutn-
ings, leyfi skilanefndar til 1. maí 1932.
Að því er til þeirrar síldar kemur, sem
einkasalan hefur til umráða og veidd er
fyrir miðjan nóvember 1931, koma téð
lög nr. 61, 14. júní 1929, um einkasölu
á útfluttri sild, og reglugerð, sem sett
hefur verið samkvæmt þeim, að eins til
framkvæmda, að svo miklu leyti, sem
samrimanlegt er skiptameðferðinni og
reglum þeim, sem atvinnumálaráðherra
kann að setja um hana.
6. gr. Kostnaður allur við skiptin, þar
á meðal laun skilanefndarmanna, greið-
ist sem forgangsskuld af eignum búsins,
samkvæmt 82. gr. skiptalaganna.
7. gr. Lög þessi öðlast gildi þegar í
stað. Falla þá jafnframt úr gildi, aðöðru
leyti en í 5. grein segir, lög nr. 61, 14.
júni 1929, um einkasölu á útfluttri síld,
svo og lög nr. 60, 9. septbr. 1931, um
breyting á þeim lögum.
Eftir þessu eiga allir hlutaðeigendur
sér að hegða.
Gjört á Amalíuborg 9. desbr. 1931.
Christian R.
(L. S.)
Tryggvi Pórhallsson.
Sjómannalíf í Hafnahreppi
síðastliðin 60 ár.
Eftir Ól. Ketilsson.
Framh.
Litlu seinna klæddist Hákon svo nýj-
um biðilsbuxum og hélt með fríðu föru-
neyti til Jóns dannebrogsmanns Sighvats-
sonar í Ytri-Njarðvlk. Hóf Hákon þar
bónorð sitt til hinnar mikillátu og mann-
vænlegu meyjar, Önnu dóttur Jóns drbm.
Urðu auðæfi metorð og manngildi, á-
samt glæsimennsku sjálfs biðilsins, þyngri
á meyjarmetunum en tvíkvænið. Var
Arina þar Hákoni heitin og fast
drukkið festaröl að fornum sið!
Hélt Hákon svo heim aftur, með hinn
mesta meyjarblóma og meyjarhita, sem
Gullbringusýsla átti þá til! En það má
merkilegt kallast, að sambúðiu og sam-