Ægir - 01.12.1931, Qupperneq 15
ÆGIR
243
Skýrsla um vélfræðinámsskeið
sem haldið var á Isafirði veturinn 1931,
að tilhlutun Fiskifélags Islands.
Eftir beiðni Fiskifélags íslands, tók ég að
mér að halda námskeið i mótorvélafræði
á ísafirði í vetur, og í þeim tilgangi fór
ég þann 5. október vestur með s/s
»Nova« og kom til Isafjarðar þann 8.
október. Sama dag hóf ég undirbúning
undir námsskeiðið.
Eiríkur Einarsson, formaður fiski-
deildarinnar, hafði tekið á móti um-
sóknum frá nemendum og voru þeir 18
að tölu. Einnig var hann mér mjög
hjálpsamur við undirbúning námskeiðs-
ins. Daginn eftir var námskeiðið sett að
öllum nemendum viðstöddum. Rúmgott
húsnæði höfðum við fengið fyrir munn-
legu kennsluna hjá Hjálpræðishernum
og fyrir verklegu kennsluna fengum við
smiðju J. H. Jessens, en þar voru tveir
mótorar fyrir, sem við fengum að nota
við kennsluna. Nú var byrjað á kennsl-
unni strax daginn eftir skólasetningu,
eða laugardaginn 10. október. Eg undir-
ritaður kenndi öll fögin nema íslenzk-
una. Hana kenndi hr. rithöfundur Guðm.
G. Hagalín. Kennslunni var hagað þann-
ig, að munnleg kennsla fór fram annan
hvorn dag og svo verkleg kennsla hinn
daginn.
Munnleg mótorfræði var kennd frá kl.
8—11 f. h. og við þá kennslu notaði ég
kennslubók eftir Þórð Runólfsson. Við
fórum yfir hana alla og til betri skýr-
ingar, lét ég námssveinana hafa með sér
bækur til að teikna ýmsa vélahluta, þar
sem fyrnefnd mótorfræði náði ekki út-
yfir. Einnig þegar fór að líða á náms-
skeiðið og menn voru farnir að fá dá-
litla undirstöðu i reikningi, þá til betri
skýringar, fór ég með mótorfræðina dá-
lítið inn á vegi stærðfræðinnar. Með því
fannst mér að menn ættu betra með að
skilja hlutföll milli hinna ýmsu hluta
vélarinnar; og einnig var þeim kennt að
reikna út bremsuhestöfl eftir hinum al-
gengustu bremsum, svosem kaðalbremsu,
Pronybremsu, vatnsbremsu, og því til
betri skýringar bjuggum við til, Prony-
bremsu og bremsuðum annan mótorinn
af með henni og voru þá nemendur
látnir reikna út hestöflin eltir hinu mis-
jafna álagi vélarinnar.
Þar sem notkun háþrýstivéla og Diesel-
véla hefur aukist hjá okkur íslending-
um, nú á seinni árum, lagði ég mikla
áherslu á að skýra byggingarlag þeirra
og meðferð og þá um leið var dia-
grammiðtekið til meðferðar og skýrt út.
Þá um leið gafst okkur tækifæri á að
sjá loftþjöppulausa Dieselvél. Hún var í
verksmiðjunni »Víking« (h/f Fiskimjöl).
Þangað fórum við og skýrði ég þar út
helztu hluta vélarinnar og að því loknu
var hún sett i gang og keyrð dálítið.
Einnig fengum við leyfi hjá »íshús-
fél. Jökli« til að fara í íshúsið og skoða
vélarnar þar. Þar var Ellwe mótor sem
við fengum að taka helztu hluti upp úr
og útskýra þá, og að því loknu voru
nemendur látnir æfa sig í að setja hann
í gang.
íslenzka var kennd frá 11—12, og
kenndi hr. Guðm. Hagalín hana eins og
fyr segir, og lét hann piltana gera heima-
ritgerðir um létt efni, og skýrði svo rit-
villur út i tímunum og höiuðatriði ís-
lenzkrar málfræði.
Stærðfr. kenndi ég frá 1—2, og voru
menn einna misjafnlegast undirbúnir í
henni. Varð ég því að byrja þar alveg
fra byrjun, en þar sem nemendur voru
námfúsir og ástundunarsamir, komust-
um við þessvegna fyr áfram en við var
að búast í fyrstu, og eftir að við vorum