Ægir - 01.12.1931, Page 16
244
ÆGIR
búnir að taka vel i gegn þessar fjórar
algengustu reikningsaðferðir, jafnt með
heilum tölum og brotnum, byrjuðum
við á hlutfallsreikningi, félagsreikningi
og prósentureikningi. Lengra varð ekki
komist á svo stuttum tima og var því
sá tími sem eftir var, notaður, til að
lesa upp fyrnefndar aðferðir. Einnig
voru nemendur látnir reikna mikið
af heimadæmum, sem var til mikilla
bóta. Reikningsbækur notuðum við eftir
Sigurbjörn Á. Gíslason, IV. og V. hefti
og reikningsbók eftir ólaf Daníelsson.
Eðlisfræði var kennd frá 2—3 og not-
uðum við þar kennslubók í eðlisfræði
eftir Vald. V. Snævar. Við fórum yfir
hana alla, og þar sem við þótti þurfa,
bætti ég inní og lét piltana skrifa niður
hjá sér til minnis. Einnig til betri skýr-
ingar fórum við með eðlisfræðina dálítið
inn á vegi stærðfræðinnar líkt og með
mótorfræðina.
Verklega kennslan fór fram alltaf ann-
anhvern dag og voru við hana aðallega
nolaðar tvær vélar: 15 hesta Skandia og
5—6 hesta Dan. Við byrjuðum á að
taka Skandia-vélina alla í sundur, og
þar sem vélin var mikið slitin og úr
lagi gengin, þá fengu nemendur góða
æfingu i að skafa til legur og gera við
helztu ganglimi vélarinnar og fella þá
inn að nýju. Einnig var þeim kennt að
steypa hvítamálm í legu og fella járn
saman, tinlóða og harðlóða rör,1 o. m.
fl. Yfir höfuð var nemendum kennt
að dæma um og lagfæra flesta þá
galla, sem orsakast af illri meðferð og
sliti á vélum, og að hreinsun og við-
gerð lokinni, var vélin byggð saman aft-
ur og skýrt út um leið. Að lokinni sam-
setningu, voru nemendur látnir æfa sig
í að setja vélina í gang og finna út
helztu gangtruflanir, og þegar menn voru
orðnir glöggir á gang tvígengisaðferðar-
innar, var Dan-vélin tekin upp og gerð
sömu skil og Skandia-vélinni, Að þessu
loknu voru báðar vélarnar keyrðar sam-
timis og gerðar á þeim helztu truflanir,
sem orsakast af notkun og rangri sam-
setningu véla, og nemendum kennt að
finna þær og koma þeim i lag.
Kennslustundir í verklegu, voru 6 á
dag, en þar sem timinn er stuttur og
mikið sem einn mótormaður þarf að
kunna, til þess að geta leyst skyldu sína
vel af hendi við mótorstarfið, þá fjölg-
aði ég stundunum seinni partinn upp í
8 stundir, en það er tvöfalt lengri tími
en reglugerðin ákveður. Líka við munn-
legu kennsluna var bætt inn í stundum,
einkum þó fyrir prófið.
Pegar námskeiðið hafði staðið i fullar
8 vikur, fórum við að huga til prófs og
voru þá prófdómendur útnefndir af
sýslumanni, þeir vélasmiðirnir herra Sig-
tryggur Guðmundsson og herra Ingi-
mundur Guðmundsson.
Prófið byrjaði svo miðvikudaginn 9.
desember og endaði föstudaginn 11. s. m.
og stóðust það allir nemendur.
Rej’kjavík, 17. des. 1931.
Guðm. Jónsson.
Vitar og sjómerki.
Auglýsing fyrir sjómenn 1931.
36. Skipstjórinn á togaranum Hugelia
frá Grimsby tilkynnir, að skipið hafi 3.
þ. m. kl. 20, rekist á rekald í hafi, um
20 sm. S a A (eftir áttavita) frá Revkja-
nesi. Vindur var A S A, nokkur sjór, n.
br. ca. 63° 35', v.lgd 22° 12'.
(4. des. 1931).
Vilamálastjórinn.