Ægir - 01.12.1931, Síða 17
ÆGIR
245
Frá stjórnarráðinu.
í sambandi við bréf ráðuneytisins, dags.
26. ágúst s. 1., snertandi pólska tilskipun
um heimild til lækkunar áaðflutningsgjaldi
á þurkuðum salfiski, tilkynnist hér með,
að gildi tilskipunar þessarar hefur verið
framlengt þar til 30. apríl 1932.
(27. nóv, 1931).
F. h. r.
e. u.
Siefán Porvarðsson.
Samkvæmt fregn frá utanríkismála-
ráðuneytinu danska, í bréfi dags. 19. f.
m., hefur spanska ríkisstjórnin þann 30.
sept. s. 1., birt tilskipun er heimilar fjár-
hagsráðherranum að hækka innflutnings-
gjaldið á vörum frá löndum sem beita
óvinsamlegum aðferðum gegn innflutn-
ingi á vörum frá Spáni. Á tilskipun þessi
einkum við í þeim tilfellum er hér segir:
1. Ef að eitthvert ríki hækkar inn-
flutningsgjaldið á vörum frá Spáni, vegna
verðfalls spönsku myntarinnar,
2. Ef að eitthvert ríki gerir ráðstafanir
— með innflutningsbanni eða innflutn-
ingshöftum, heilbrigðisráðstöfunum eða
á annan likan hátt — er hefta frjáls við-
skifti með spanskar vörur, gegn ákvæð-
um gildandi samninga.
(4. aes. 1931).
F. h. r.
e. u.
Stefán Porvarðsson.
Frá ráðuneyti forsætisráðherra:
Eins og kunnugt er, hefur nýlega verið
gefin út spönsk tilskipun, er heimilar
verzlunarmálaráðherranum að setja inn-
flutningshömlur á innflutning til Spánar
á nokkrum vörum, þar á meðal á þurk-
uðum og nýjum fiski.
Frá utanríkismálaráðuneytinu danska
hefur ráðaneytinu nú borist símskeyti,
þar sem nánar er gerð grein fyrir tilefni
og tilgangi lilskipunarinnar. Endurrit af
nefdu símskeyti sendist hér með til at-
hugunar.
F. h. r.
e. u.
Stefán Porvarðsson.
Símskeyti, dags. 23. desember, utan-
ríkismálaraðuneytisins danska. Pýðing.
Samkvæmt upplýsingum frá sendiráð-
inu í Madrid hefur spánska verzlunar-
málaráðherranum verið veitt heimild til
með tilskipun dags. 23. desember að setja
ákvæði um innflutningsmagn (kontingent)
á nokkrum vörutegundum, og er nýr,
þurr og niðursoðinn fiskur þar á meðal,
enn fremur að jafna þessu innflutnings-
magni á löndin, eftir því, sem hagsmunir
Spánverja heimta.
Ákvæði þessi um magn, ganga úr gildi
þegar alþjóða verzlunarástandið erkomið
í rétt horf. — Tilskipun þessi mælir cnn
fremur svo fyrir, að í verzlunarsamn-
ingum, sem að framvegis verða gerðir,
veitist aðeins ivilnanir á ákveðnum vöru-
teguudum, og að samningar um beztu
kjör verði endurskoðaðir hið bráðasta.
Tilskipun þessi mælir ennfremur svo
fyrir, að í verzlunarsamningum sem fram-
vegis verða gerðir, veitist aðeins ívilnanir
á ákveðnum vörutegundum og að samn-
ingar um beztu kjörverði endurskoðaðir
hið bráðasta. Ráðstöfun þessa á að leggja
fyrir spanska þingið (Cortes).
Greinargerð með ráðstöfun þessari,
telur örðugleika á innflutningi afurða
Spánar til ýmsra landa orsök tíl þess,
að þessi ráð eru tekin gegn þessum sömu
löndum, en aftur á móti á að láta hin,
sem kaupa vörur af Spánverjum, svo
um munar njóta þeirra ivilnana, sem
auðið er að láta í té.