Ægir - 01.12.1931, Síða 18
246
ÆGIR
Auk þessa á að endurskoða alla verzl-
unarsamninga þeirra landa, sem ekki
greiða fyrir innflutningi á spönskum vör-
um eins og Spánverjum þykir hæfa.
Ennfremur segir svo í greinargerðinni
að takmörkun innflutnings, einungis verði
beitt við þær vörutegundir, sem auðið
er að vera án og innflutnigshöftum verði
hagað þannig, að um skort og verðhækk-
un á nauðsynjavörum verði eigiaðræða;
verður það með þeim hætti, að skift
verður við þá, sem greiða fyrir spönsk-
um vörum.
Ráðstafanir þessar eru einkum gerðar
til að vinna á móti innflutningshöftum
Frakka, en að hve miklu leytí þau kunna
að snerta önnur lönd, er undir því komið,
hvernig þessu verði beitt er timar liða,
en um það er ekkert auðið að segja,
að svo stöddu.
Togararnir.
Sjómannafélag Reykjavíkur gerði eftir-
farandi samþykkt á fundi sínum 30. þ. m.:
»Sjómannafélag Reykjavíkur samþykkir
að heimila meðlimum sínum að vinna á
íslenzkum botnvörpungu'm fyrst um sinn,
þar til félagið kann að gera aðra ályktun,
fyrir sama kaup og kjör, er fólust í
samningi, sem gilti 1931«.
Vélstjórafélagið mun hafa gert sömu
samþykkt.
Samþykkt um þetta efni hafa útgerð-
armenn ekki gert, en eltir því sem blaðið
hefur frélt, munu þeir ætla að halda
togurum á veiðum, meðan á samning-
um stendur, að svo miklu leyti, sem við
verður komið.
Útgerðarmenn hafa ákveðið, að halda
áfram ísfisksveiðum með sama kaupi og
áður, á meðan samningar standa yfir.
,, Æ G I R “ óskar §
# &
§ lesendum sínum g
5 Gleðilegs Nýjárs. §
6 §
Fiskútflutningur Norðmanna.
Frá því er sagt í »Fiskaren« frá 25.
nóvember s. 1., að Landssamband norskra
útflytjenda, hafi ákveðið lágmarksverð á
fiski frá byrjun nóvemberm. og að það
hafi numið c. þrem sh. hærra verði (per
60 kg.) fyrir aðalmarkað þeirra, Lissabon,
en var áður en áhrifa samtakanna fór
að verða vart.
»Bráðlega tókst«, segír í greininni, »að
ná þessu hærra verði, sem er að þakka
samtökunum, sem komin eru á í stað-
inn íyrir eyðileggjandi samkeppni«.
Markaðurinn er einnig nú orðinn mik-
ið öruggari en áður.
Enda þótt menn utan samtakanna geti
nú selt sinn fisk 15 aurum ódýrari per
vigt (20 kg.), þar sem þeir sleppa við
gjöld í samlagssjóð, hefur það sýnt sig,
að þeim gengur mjög erfiðlega að selja.
Þetta er fyrsta reynzlan, sem Norð-
menn hafa af samtökum fiskútflytjenda,
og ættu íslendingar að fylgjast vel með
þessum málum, þvi efalaust má mikið
af þeim læra.
Leidr éttlntr. í greininni »Svartfugl og
fiskseiöi við í>lan(i«, í siöasta tbl. Ægis, stendur
efst á bls. 218: Eltir útreikningura dr. Bjarna
Sæmundssonar nægja 3—4 þorsKar (6—8 ára),
á aö vera 3—4 porskar (6—8 ára) af hverri
miljön egaja.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
BikisprentsmiCjan Gutenberg.