Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1933, Blaðsíða 3

Ægir - 01.03.1933, Blaðsíða 3
ÆGIR MÁNAÐARIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 26. árg. Reykjavík. — Marz 1933. Nr. 3. Mannskaðinn á Akranesi 20. janúar 1933. Það er ekki nýtf að Akurnesingar missi menn í sjóinn, en þó hafði orðið nokk- urt hlé á mannsköðum þar um 10—12 ára skeið, unz vélbáturinn »Kveldúlfur« hvarf svo sviplega með allri áhöfn um 20. janúar þ. á. Yar oss hvarfið því óvæntara og torskildara, sem við viss- um, að »Kveldúlfur« var bæði stór bát- ur og sterkur, búinn að öllu eins og bezt mátti verða, og allir skipverjar frábærir dugnaðar sjómenn. Yfirmenn á bátnum voru þeir Skafti og Einar, bræður, synir Jóns Halldórssonar á Hofi á Akranesi °g Jónínu Jónsdóttur, konu hans. Var Skafti skipstjóri, en Einar stýrimaður. Þriðji maður á bátnum var Guðmund- ur Jónsson, Danielssonar skipstjóra, er fórst með skipinu »Georg« 1907 og konu hans Þórdísar Guðmundsdóttur, er síðar 8‘ftist Einari S veinssyni ti ésmíðameistara °g búa þau nú i Reykjavík. Guðmund- Ur ólst upp hjá þeim hjónum, en tók að stunda sjó á mjög ungum aldri. Var hann sjómaður með lífi og sál., og vildi kelzt alltaf á sjónum vera. Hann lauk prófi við Slýrimannaskólann í Reykjavík 1930. Guðmundur var frábær atorku- og reglumaður, mjög stilltur og gætinn og ráðsettur langt um aldur fram. Hann var trúlofaður Kristínu Margréti, systur þeirra Skafta og Einars og ætlaði að ganga að eiga hana hinn 4. febr. þ.á. ef honum hefði enst aldur til. Guðmundur var fæddur 27. sept. 1906 og því rúmlega 26 ára, er hann fórst. Fjórði maðurinn Helgi Ebenezerson, var fæddur í Reykjavik 24. júlí 1891, en dvaldist á Akranesi 9 síðustu ár æfi sinn- ar. Hann var afbragðs sjómaður og jafn- an til hvers starfs búinn, er vinna þurfti, grandvar i öllu sínu dagfari og vinsæll. Árið 1925 kvæntist hann Agöthu Sigurð- ardóttur, en misti hana tveim árum síð- ar. Dvaldist hann upp frá því á heimili tengdaforeldra sinna og reyndist þeim um allt, sem væri hann sonur þeirra. Fimmti maðurinn, Indriði Jónsson frá Norðurkoli í Innra-Akraneshreppi, fædd- ist 2. febrúar 1899. Hann stundaði sjó frá því er hann var 14 ára og til þess er yfir lauk, enda gerðist hann afbragðs sjómaður, jafnskjólt sem aldur færðist yfir hann. Árið 1924 varð sú breyting á störfum hans á skipsfjöl, að hann gerð- ist vélstjóri; þótli honum fara vélstjórn- in vel úr hendi, sem annað, er hann lagði fyrir sig og var talinn með allra beztu vélstjórum á Akranesi. Árið 1924 kvæntist hann Vilborgu Þorbjörnsdóttur og lifir hún mann sinn ásamt tveim drengjum þeirra, á 7. og 2. ári. Indriði var htnn mesti reglumaður, fáskiftinn og

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.