Ægir - 01.03.1933, Blaðsíða 5
ÆGIR
75
Indriði Jónsson. Þorbergur Guðmundsson.
En af þessum 6 mönnum þekkti ég
Hofsbræður bezt. Voru þeir fæddir að
Bakka á Akranesi. — Skafli 25. júlí 1895
og Einar 20. júlí 1901 — og komnir af
hinni kunnu Kjalnesingaætt Þorvarðs
Oddssonar prest á Reynivöllum; voru
þeir í fimmta lið frá Þorvarði, en lang-
amma þeirra var Gunnhildur á Bakka,
stórmerk kona og frábær ljósmóðir á
sinni tið. Hefur ættleggur þeirra Einars
sál. Þorvarðssonar og Gunnhildar sópast
svo vendilega í sjóinu, að svo má nú
heila, að einir tveir séu á lífi af karl-
leggnum, þeir Jón Halldórsson að Hofi,
faðir Skafta og Einars, og Halldór sonur
Jóns, kaupmaður á Akranesi.
Skafti og Einar ólust upp hjá foreldr-
um sínum og dvöldust hjá þeim til æfi-
loka; tóku þeir að stunda sjó þegar, er
þeir höfðu aldur til og héldu þeirri iðju
til dauðadags, oftast á mótorbátum, en
þó stundum á togurum og þóttu hvar-
vetna afbragðs liðtækir menn, kappsam-
ir um vinnuna og lægnir. Skafti gekk á
Stýrimannaskólann í Reykjavik og lauk
þar prófi 1921 með lofi, eftir eins vetrar
nám. Lét einn kennara hans svo um
mælt, að fám hefði hann kennt slíkum
námsmönnum, sem Slcafti var. Einar tók
smábátapróf nokkru síðar.
Það var sameiginlegt áhugamál þeirra
bræðra að verða efnalega sjálfstæðir, og
því var það, að 1928 réðust þeir í að
kaupa mótorbátinn »Kveldúlf«; voru þeir
þá báðir félausir, sem vænta má. — En
svo var dugnaðurinn mikill og heppnin
við veiðarnar, að hálfu öðru ári síðar
gátu þeir keypt jörðina Lambhús á Akra-
nesi. Má svo heita að síðan ræki hver
framkvæmdin aðra. Þeir reistu sér
fiskhús mikið og vandað við Lambhúsa-
vör og gerðu bryggju við, en steyptu síð-
an flóðgarð alllangan og sterkan norður
frá húsinu til varnar landi sínu og aukn-
ingar; voru þeir komnir vel á veg með
að fylla lautina innan garðs, er þeir féllu
frá. Þurkreiti gerðu þeir og, suma af
grjóti, en mest þó af trjágrindum, enda
þótti þeim þær betri og auðveldara miklu
að vinna við þær. í haust keyptu þeir