Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1933, Side 6

Ægir - 01.03.1933, Side 6
76 ÆGIR svo mb. Svöluna til móts við Eyjólf Is- aksson frænda sinn, atkvæðaformann og sjósóknara, og einn mesta atlamann. Þurfti þá meira húsrúms við, og voru þeir að reisa sér annað fiskhús og var því ekki lokið er þeir féllu frá. Á þess- um örfáu árum voru þeir búnir að búa svo vel um sig, að þeir hefðu getað far- ið að hætta sjómennsku, því að verk- efnin voru nóg í landi, enda mun þessi hafa ált að vera síðasta vertíðin þeirra á sjó. Munu þeir hafa hlakkað til þessa, því að reyndar voru þeir ekki mjög hneigðir fyrir sjóinn, þótt duglegir væri. En þelta átti ekki svo að fara. Með þeim Skafta og Einari eru fallnir i valinn þeir menn, sem fyrir flestra hluta sakir stóðu framarlega, ef ekki fremstir allra ungra manna á Akranesi. Þeir voru menn vel gefnir, og þó nokk- uð sinn með hvorum hætti, dugnaðar- menn svo miklir, að það bar frá, jafn- vel meðal Akurnesinga, sem þó eru við- urkendir dugnaðarmenn. Peir störfuðu á sjó og landi og vildu ekki skilja, enda hafði hvor það, er hinn kunm helzt að skorta. Kom þeim og betur ásamt um alla hluti en annars er oft títt um bræð- ur, og veit ég ekki dæmi þess, að þá skildi nokkru sinni á. Vildu þeir og aldrei skilja, enda hafa þeir nú orðið samferða yíir á hið ókunna landið. Er hinn mesti skaði í fráfalli allra þessara sex manna, og ekki minnslur að þeim Hofsbræðrum; mun og vandskipað sæti þeirra. — Þeir voru manna hófsam- astir til orðs og æðis þeirra manua, sem ég hefi þekkt. — Voru þeir því virtir mikils af öllum, sem þeim kynntust, og af þeim mest, sem þekktu þá bezt. Er slikum mönnum gott að lifa, en — einn- ig gott að deyja. Porsteinn Jónsson. Frá utanríkismálaráðuneytinu. Danski aðalræðismaðurinn í Danzig, hefur í bréfi dags. 4. janúar s. 1. gefið ýmsar upplýsingar, snertandi verkun síld- ar fyrir markaðinn í Danzig svo hljóðand: Þar sem ætla má, að útflytjendum ís- lenzkrar síldar, komi það vel að fá nokkr- ar upplýsingar um markaðinn hér, vill ræðismaðurinn skýra frá þvi, að á Þor- láksmessu s. I. komu tveir islenzkir út- flytjendur á ræðismannsskrifstofuna og fengu þaðan mann með sér, sem vísaði þeim á hinn helzta síldarkaupmann í borginni, sem sýndi þeim geymslu- og kælihús sín og útskýrðí fyrir þeim það, sem helzt bar fyrir augu. Þessir menn stóðu að eins við hálfan dag í borginni. Þegar Danzigarkaupmaðurinn benti á lélega pökkun íslenzku síldarinnar, lét hann til samanburðar opna nokkrar tunnur af skozkri síld og sýndi íslend- ingunum hvernig gengið var frá henni í tunnunum. Skozku síldinni er raðað svo jafnt og þétt í tunnurnar, að ómögulegt er, að hún haggist i þeim meðan þær eru flultar og einnigbenti hann á, að all- ar síldir í sömu tunnu væru jafnstórar að heita mætti. Öðru máli væriaðgegna um íslenzku síldina, henni er ekki rað- að í tunnur líkt því eins þétt og hinni skozku, og auk þess er hún ekki eins jöfn að stærð í tunnunum og hin skozka og er slíkt óheppilegt fyrir þá, sem selja í smásölu og afhenda til kaupenda eina og eina síld af sömu gæðum, fyrir sama verð, en misjafna að stærð. Sá kaupandi, sem kaupir nokkrar síld- ar af sömu gæðum, fyrir sama verð hverja síld, ætlast til, að stærðin sé að mestu hin sama. Sömuleiðis áleit innflytjandinn að Is- lendingar notuðu ekki hið rétta salt til

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.