Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1933, Síða 8

Ægir - 01.03.1933, Síða 8
78 ÆGIR 8. Þórður Kárason, úr Reykjavík, 24 ára gamall. 9. Þórður Guðmundsson, Vesturgötu 22, Reykjavik, 42 ára. Var giftur. Lætur eftir sig 2 ung börn. Þessir björguðust: 1. Guðmundur Magnússon, skipstjóri, Hallveigarstig 9, Rvk. 2. Halldór Magnússon, stýrimaður, úr Hafnarfirði. 3. Bjarni Marteinsson, II. vélstjóri, úr Hafnarfirði. 4. Helgi Halldórsson, matsveinn, Skóla- vörðustig 12, Rvk. 5. Bjarni Árnason, úr Stykkishólmi. 6. Jónmundur Einarsson, úr Grundar- firði. 7. Guðmundur Jóhann Guðmundsson, úr Hafnarfirði og 8. Gunnar Sígurðsson, úr Hafnarfirði. Brigitte Sturm kom hingað með þá, sem bjargað hafði verið. Fregnin barst þá þegar út um bæinn. Fannst öllum mikið um þetta hörmu- lega slys — að níu vaskir menn skyldu drukkna í veiðiför á linuveiðara í blíð- skaparveðri hérnaskammt utanviðhöfn- ina. í sjóréttinum 21. jan. Klukkan 2 var sjóréttur settur út af slysi þessu. Forseti sjódóms, Björn t*órð- arson, lögmaður, meðdómendur í þetta sinn Geir Sigurðsson skipstjóri og Sigur- jón A. ólafsson. Skýrsla Hugo Arp, skipstjóra á „Brigitte Sturm". Fyrst var skipstjóri þýzka skipsins Bri- gitte Sturm yfirheyrður. Mætti hann i rétlinum með dagbók skipsins, þar sem lýst var ferð þess, aðdraganda að slys- inu og slysinu sjálfu. Er skýrslan hafði verið lesin upp í réttinum, var hann spurður allmargra spurninga um ýms atriði úr skýrslunni og hann beðinn um nánari skýringar. Hér birtist útdráttur úr framburði >, hans, án þess að tilgreint sé, hvað er tekið úr frumskýrslu hans og hvað, eftir viðbótarskýringum. Brigitte Sturm fór frá Stykkishólmi á mánudagsmorgun. Segir ekki af ferðum skipsins fyrri en á mánudagskvöld, er skipið átti skammt eitir ótarið hingað. Sá skipstjóri Ijós hvitt, er bar lágt yfir sjávarflöt og hann áleit vera vinnuljós á fiskiskipi; þetta var kl. 19.40 mín., um kvöldið. Seinna kvaðst skipstjóri hafa séð, að Ijós þessi voru tvö. Hafði hann athug- að þau í kiki. Taldi hann víst, að þau væru bæði á sama skipinu, en að hann síðar sá ljósin tvö, taldi hann stafa af þvi, að afstaða skipanna breyttist vegna siglingar Brigitte Sturm. En að fiskiskip þetta lægi kyrrt, réði hann af því, að hann sá ekki önnur ljós á skípinu. Hélt hann nú áfram ferð sinni, eins og ekkert væri. Hann fór með 10 sjó- milna hraða. Brigitte Sturm var á að giska 2—300 metra frá fiskiskipinu með hvitu ljósin, er reyndist að vera Papey. Var Papey 2J/a stryk á stjórnborða við Brigilte Sturm. Þetta þótti skipstjóra, að því er hann sagði, helzt til lítið bil, svo hann víkur skipi sinu V2 stryk í viðbót á bakborða, svo hann með því móti, sigldi fjærskipi þessu, er hann taldi þá, að kyrt væri. En rétt í sömu andránni og hann vík- ur skipi sinu þetta lítilræði til bakborða sér hann og stýrimaður, sem með hon- um var á stjórnpalli, að upp kemur rautt ljós á fiskiskipinu, og um leið Ijósísiglu og að skipið stefnir beint t leið fyrir Brigitte Sturm. En sökum þess, segir skipstjóri, að

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.