Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1933, Side 9

Ægir - 01.03.1933, Side 9
ÆGIR 79 hann hafði þegar vikið skipi sínu á bak- borða, gat hann ekki snúið þvi á stjórn- borða, og stefnt á þann hátt aftur fyrir Papey. Hann gefur því merki um, með því að blása tvisvar snöggt í eimpípuna, að hann beygi til bakborðs. En er hann sér að árekstur er óumflýjanlegur, set- ur hann vélina á fnlla ferð aftur á bak, og tilkynnir það með þremur stuttum blástrum. En í þeim svifum rekst stefni Brigitte Sturm i síðu Papeyjar, rétt aftan við miðju, og gekk stefnið langt inn í skipið. Þetta var kl. 20.14 min. Setti skipstjóri nú fulla ferð áfram, til þess, með því móti, að halda stéfninu að hinu sökkvandi skipi, svo skipverjar gæti frekar bjargast upp á það. Kl. 20.16 mín. stöðvaði skipstjóri vél- ina. Og rétt i þessum svifum sökk Papey. Frásögn Halldórs Magnússonar, stýrimanns á Papey. Guðm. Magnússon skipstjóri, hafði ekki ferlivist. En Halldór Magnússon 1. stýri- maður mætti íréttinum. Lagði hann þar fram svo hljóðandi skriílega skýrslu: Sjótjónsskýrsla, frá skipstjóra og stýrimnnni á e.s. Pap- ey G. K. 8 Hafnarflrði. KI. 7.45 e. m., 20. íebrúar losaðar land- festar og farið frá Reykjavik á leið til fiskveiða. Kl. 8 e. m. sett á fulla ferð, þá var komið út i farvatn ytrihafnar. Tendruð öll Ijós, og byrjað að beita. Allir á þilfari nema vélamenn í vélar- rúmi. Kl. 8.15 e. m., var komið útfyrirEng- ey. Stýrð stefna: N að V. Stýrimaður þá kominn á stjórnpall ásamt skipstjóra. Sást þá skip koma fram undan til b.b. seni skar okkar stefnu eftir millibili ^astursljósa þess að dæma. Kl. ca. 830 var skipið komið mjög nálægt og gaf til kynna að það sneri á bakborða. Var þá gefið merkifrá Papey, að beygt væri á stjórnborða, annað ó- gerlegt. Þá svaraði skipið með fullri ferð aft- ur á bak, og eftir fá augnablik skall skipið á miðja Papey b.b. meginogskar hana inn undir miðskipa. Liðu ekki meira en ca. 2 mínútur frá því, og þar til hún sökk. Þegar sást, að árekstur mundi verða, var kallað til skipverja að vera viðbún- ir, og voru þeir sumir á leið, og sumir komnir að bátunum, þegar árekstur- inn varð. Var byrjað að losa bátana, en tími vanst ekki til þess aðljúka við það, áður en Papej" sökk. Áhöfn á Papey alls 17 menn, þar af björguðust 8 með þeim hælti að 4 menn komust á akkeri skipsins, sem var s. s. »Brigitte Sturm« frá Hamborg, 1 synti að því og 3 björguðust í bát fráskipinu Var leitað lengi á tveim bátum fráskip- inu og hafðir úti 2 björgunarhringar með ljósum. Logn, heiðskýrt. S. s. Papey liggur á 34 metra dýpi N. að V. frá Engey i ca. 2,5 sjóm. fjarlægð. Grótta hvít. Reykjavik, 21. febr. 1933. Framhald sjóréttar var dagana 22. 23. og 24. febrúar. Skipstjórinn, Guðmundur Magnússon, gat ekki mælt í réttarhöldunum vegna veikinda og er skipstjóri á Brigitte Sturm hafði sett veð, var honum leyft að halda ferð sinni áfram, en málið er óútkljáð.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.