Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1933, Síða 23

Ægir - 01.03.1933, Síða 23
ÆGIR 93 ins, áður en þeim hefði verið náð fram á síðuna. .Skömmu eftir að við höfðum lokið við að ná mönnunum úr þessum bát og festa hann aftan í, sást til tveggia báta enn, sem stefndu til okkar. Fór mér nú ekki að lítast á, að hægt væri að koma öllum þessum mönnum undir þiljur, þar sem 27 manna skipshöfnvar fyriráskip- inu. En sjálfsagt var að gera það sem hægt var. Komu nú þessir tveir bátar á svipuðum tíma til okkar, og tókst okkur að ná mönnunum úr þeim, öllum ómeiddum. Allir bátarnir voru sett- ir aftan í Esther, hver aftan í annan, og var nú Esther gamla hæg- fara með alla þessa trossu i eftirdragi. Það var nú orðið fjölmennt umborð. 38 menn voru alls á þess um 4 bátum og þarf ég ekki að Iýsa hvernig um- horfs var fyrir þeim, sem þekkja til ibúða í kútt- eruni. 25 menn voru í káetunni og 40 í lúgac. Ég sá þegar að eini möguleikinn til að missa ekki bátana var að ná sér upp á vikina sunnan við Reykjanesið og leggj- ast þar fyrir akkerum, en það var hægara sagt en gert.- Byrjaði ég nú að slaga upp- undir, en um kl. 9 um kvöldið bilaði mez- aninn og varð að taka hann niður, en meðan verið var að laga hann, rak skip- ið undan sjó og vindi, svo þegar allt var komið í lag aftur, virtist öll von úti um það, að hægt væri að ná sér undir land, því enn hafði hert veðrið að mun. Var uú lagt til drifs, þó að það væri neyð- arúrræði því skipið var svo hlaðið að það var ekki fært til að mæta stórsjó og roki úti á hafi. Allt sem upp úrstóðvar margfalt af ldaka, einkum reiðinn og segl- in. Það kom fljótt í Ijós. þegar lengra dró frá landi — sem ég hafði álitið, að skipið væri of hlaðið og minnist ég ekki þeirra tíma, sem ég var á skútum, að hafa séð skip liggja eins djúpt eins og Esther í þetta sinn. Það var auðvit- að, að alltaf stækkaði sjórinn, eftir þvi sem lengra dró frá landi og sýni- legt hvaða enda það myndi hafa, ef ekkert væri að gert. Við létum þorsklif- ur í nokkra poka og bundum þá á kul- borða, en það reyndist ekki fullnæjandi. Það sem næst lá fyrir, var að létta skip- ið, en það var enginn hægðarleikur, og ég fullyrði það, að hefði ég ekki haft eins valið lið, er óvíst hvernig fariðhefði. En allir voru samtaka og enginn hlýfði sér og eftir tveggja stunda vinnu var bú- Kútter Esther

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.