Ægir - 01.03.1933, Side 26
96
ÆGIR
Bátur ferst. 4 menn drukkna.
Bátar úr Höfnum reru aðfaranótt
20. marz, en einn þeirra hefur ekki
komið fram. Hinir bátarnir sáu til hans
meðan þeir voru yfir línunum, en ekki
eftir það.
Varðskipið »Ægir« var fengið til þess
að leita bátsins á mánudaginn. Fekk það
kunnugan mann úr Höfnum til þess að
vera með í leitinni ogleiðbeina um hvar
helzt mundi vonir að finna bátinn ef
hann væri ofansjávar. Var varðskipið að
leita hans mikinn hluta dags. Seint
um kvöld 20/3 barst Slysavarnarfélagínu
skeyti frá skipherranum á Ægi þar sem
hann segist hafa leitað allstaðar þarsem
hugsanlegt sé að báturinn hafi verið, en
árangurslaust. Linubelgi höfðu þeir fund-
ið, sem sennilega hafa verið af bátnum.
Var svo leitinni hætt og talið, að bátur-
inn muni hafa farist.
Báturinn var frá Kotvogi og á honum
4 menn. Formaður var Björn Lárusson
ráðsmaður í Kotvogi, 31 árs, ókvæntur.
Annar var ólafur Lárusson bróðir hans
frá Keldulandi á Skagaströnd, 29 ára, ó-
kvæntur. Þriðji var Páll Jónsson úr
Höfnum, 33. ára, kvæntur og átti tvö
börn. Fjórði var Karl Krisljánsson frá
Skagaströnd, 28 ára, ókvæntur.
Þrír erlendir botnvörpungar taldir
af. Slysavarnarfélagi íslands hafa borist
tilmæli um það erlendis frá, að skip við
Island gefi til kynna, ef þau verði vör
við þessa botnvörpunga, sem ekki hefir
frézt frá um skeið:
1. James Long, frá Hull. Fór þaðan
29. jan. Mælt er, að skip þetta hafi sézt
við Látrabjarg snemma í febrúar, en full-
víst er það þó ekki.
2. Westbank, frá Wesermúnde. Sást
seinast 2. febr. að veiðum undan Snæ-
fellsjökli.
3. Meteor, frá Wesermúnde. Fór það-
an 1. febrúar.
Miklar líkur eru til, að öll þessi skip
hafi farist. Á hverju þeirra mun hafa
verið 12—14 manna áhöfn.
Af togaranum Westbank, rak bjarg-
hring o. fl. í Hvassahrauni á Vatns-
leysuströnd.
Vitar og sjómerki.
Auglýsing fyrir sjómenn 1933. Nr. 7.
1. Sunnarlega yfir rifið milli M á 1 m-
eyjar og Þórðarhöfða hefir verið
mörkuð leið fyrir smáskip og báta. Merk-
in eru tvær hvítar vörður nokkru fyrir
sunnan Lónkot. Neðri varðan stendur á
grundum upp frá sjónum, en efri varð-
an uppi í hlíðinni. Vörðurnar berasam-
an í 68 ’/a ° stefnu. Á siglingaleiðinni
yfir rifið hefir ekki fundist minna dýpi
en 3 metrar um fjöru. Vestur af rifinu
dýpkar ört, en jafndýpkar ofan í Málm-
eyjarfjörð.
cfLegir
a monlhly review of the fisheries and fish
trade of Iceland.
Published by: Fiskifélag íslands (The
Fisheries Association of Iceland) Reykfavík.
Results of the Icelandic Codfislieries
from the beginning of theyear 1933 lothe
15th of March, calculated in fully cured
slate:
Large Cod 11.928, Small Cod 3 811,
Haddock 57, Saithe 5, total 15.801 tons.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.