Ægir - 01.04.1933, Síða 4
98
ÆGÍft
Heimkynni sildarinnar.
þjóðum, sem hafa þeirri hamingju að
fagna að eiga lönd að heimkynni þeirra
í hafinu. Það mætti sýna fram á það
með tölum, hvað mikinn skerf þessir
frægu þrímenningar leggja af mörkum
til þeirrar blessunar, sem fiskveiðaþjóð-
irnar öðlast úr greipum Ægis á ári hverju
og eins mætti benda á, uverjar þær þjóð-
ir eru, sem slöðugt herja á hinnar víð-
áttumiklu fylkingar þorsksins, sildarinn-
ar og skarkolans. Á slikum tölum yrði
séð, hve mikinn hluta af höfum heims-
ins tegundirnar hafa gert að heimkynni
sínu, enda þótt kort þau, sem hér eru
sýnd, gefi öllu betri hugmynd um það.
Á fyrstu myndinni (á bls. 97), sjást
heimkynni þorsksins í höfum jarðarinn-
ar. Eins og séð verður af myndinni,
heldur þorskurinn sig mest á grunnsævi,
nálægt ströndum landanna, enda er botn-
dýralifið miklu auðugra þar en þegar
lengra dregur frá landi. í íshafinu er
hann nyrzt við Bjarnareyju, Spitzbergen
og Novaja Semlja, en þaðan nær heim-
kynni hans suður um allt norðanvert
Atlantshaf, suður með ströndum Noregs,
um allt Eystrasalt og Norðursjóinn. Þá
er hann við ísland og Færeyjar, og beggja
vegna Grænlands, og við austurstönd
Norður-Ameríku, alla leið suður að Cape