Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1933, Blaðsíða 17

Ægir - 01.04.1933, Blaðsíða 17
ÆGIR 111 hér sé ekki langt gengið í lýðræðisáttina, er þó nú til í landinu stofnun, sem tek- ið gæti við stjórn, ef einveldinn forfall- aðist, og hindrað þannig byltingar. Virðingarfyllst. Helgi Briem. Auglýsing um hleðslumerki skipa. Með því að Island hefir gengið að al- þjóðasamþykkt, gerðri i London þann 5. júli 1930, um hleðslumerki skipa, sem gekk í gildi 1. janúar þ. á., kunngjörist hér með, að öll íslenzk skip, sem eru í förum milli landa, skulu vera með hleðslumerkjum og hafa alþjóða hleðslu- merkjaskírteini samkvæmt téðri alþjóða- samþykkt. Undanskilin þessum ákvæðum eru skip, sem eru undir 150 rúmlestum og skip, án tillits til stærðar, sem eingöngu eru notuð til fiskveiða, ennfremur skemmti- skip og skip, sem notuð eru til annars en til flutnings á fólki og vörum. Millilandaferð er talin ferð frá ríki, sem undirritað hefir greinda hleðslu- merkjasamþykkt, til hafnar í öðru riki eða gagnkvæmt. Gömul skip, — þ. e. skip, sem kjölur er lagður að fyrir 1. júlí 1932 — sem eru með hleðslumerkjum samkvæmt þá- gildandi ákvæðum, mega halda þeim. Skip þessi verða þó að fullnægja hleðslu- merkjasamþykktinni í aðalatriðum. Sama er um einstök atriði hennar eftir þvi sem telja má sanngjarnt og gjörlegt fyrir skip- ,n að fullnægja þeim,með þvi fyrirkomu- isgi, áhðldum og útbúnaði, sem í slcip- unum er til þess að verja dyr og önn- ur op sjó, sem og um skjólborð og hand- rið, austurop og aðgang að híbýlum skipshafnar. í stað hleðslumerkjaskirteinis, sem áður hefir verið gefið út fyrir skip, skal útvega skipinu alþjóða hleðslumerkjaskírteini. Alþjóða hleðslumerkjaskírteini fellur úr- gildi: a. ef gerðar eru verulegar breytingar á bol skips eða reisn, sem hafa á- hrif á útreikning hleðslumerkis. b. ef ekki er haldið við fyrirkomulagi og útbúnaði á: 1; vernd opa fyrir sjógangi, 2. skjólborðum og handriðum, 3. austuropum og 4. aðgangi að híbýlum skipverja, þannig að þetta sé í fullnægjandi lagi eins og þá er hleðslumerkjaskírteinið var gefið út. Ráðuneytið hefir fyrst um sinn falið skipseftirliti danska ríkisins að annasl mælingu og merkingu þeirra skipa, sem samkvæmt nefndum samningi eiga að hafa hleðslumerki, svo og útgáfu alþjóða hleðslumerkjaskirteina handa þeim. •Beiðni um alþjóða hleðslumerkjaskír- teini skal senda til »Statens Skibstilsyn« í Kaupmannahöfn. Nú er skipið flokkað i einhverjn af flokkunarfélögunum : 1. British Corporatíon Register of Shipp- ing and Aircraft. 2. Bureau Veritas. 3. Germanischer Lloyd. 4. Lloyds Register of Shipping eða 5. Det norske Veritas, og má þá senda beiðnina til hlutaðeig- andi flokkunarfélags með þvi að sam- komulag er milli dönsku stjórnarinnar og nefndra flokkunarfélaga um þessi mál. Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 15. marz 1933. Magnús Guðmundsson. Vigfús Einarsson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.