Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1933, Blaðsíða 26

Ægir - 01.04.1933, Blaðsíða 26
120 ÆGIR á höfnina, og ber þvi að fava mjög gæti- lega þessa leið. Flakið mun verða tekið burt hið fyrsta. 5. Þegar mikillsjór er í F’axaíiöa, brýtur bæði á Syðra- og Vestrahrauni. Sjómenn eru því varaðir við að leggja leið sína yfir hraunin í vestanáttum, ef mikið er í sjó. Skipum, sem fara milli Snæfellsness og Inn-flóans (Reykjavikur eða Ilafnarfjarðar), er þess vegna ráðlagl að leita fyrst Garðskaga i vestan storm- um og dimmviðrum. í þessari átt setur straumurinn einnig norður og inn í fló- ann. Th. Krabbe. „Skúli fógeti1' R. E. 144. Á ferð frá Selvogsbanka til Reykjavík- ur, strandaði þetta skip kl. milli 12 og 1, aðfaranótt bins 10. apríl, fyrír vestan Staðarhverfi í Grindavik. Slysavarnafélagsdeildinni þar, tókst að bjarga 24 mönnum, en 13 tók sjórinn, áður en björgunartilraunir hófust, og meðal þeirra var skipstjórinn, Þorsteinn Þorsteinsson, ættaður frá Meiðastöðum í Garði. Retta er 11. íslenzki togarinn, sem strandar eða hverfur, síðan 1925, en á 17 íslenzkum togurum hefur sjórinn unn- ið síðan árið 1908. Slyss þessa verður nánara getið í næsta hefti »Ægis«. Hinn 24. marz, voru farnir í sjóinn síðan um nýár..............28 menn með m.b. »Páll«.............4 — með »Skúla fógeta« .... 13 — Alls 45 menn. „ÆGIR“ óskar öllum lesendum sínum Gleðilegs sumars! Færeyjaskipin. Þau lögðu mánuði fyr af stað til veiða við suðurströnd íslands, en þeirra er siður og er það einkum hið góða verðá fiski, sem kom þeim til að leggja svo snemma út. Tíðin hefur oft verið óhag- stæð, stormar og hríðir og sjaldan stillt veður, það sem af er vertíð. FæreyÍDgar hafa misst tvö skip við á- rekstra á yfirstandandi vertíð, hér við land, en við þau slys varð þó enginn mannskaði, en atvinnumissir mikill hjá þeim, sem á skipunum voru, því flest færejrsk skip munu nú stunda veiðar og hvarvetna fullráðið. cJlacjir a monthly review oj the fisheries and fish trade oj Iceland. Publislied by: Fiskijélag íslands (The Fisheries Associaiion of Iceland) Reykjavík. Iiesults oj the Icelandic Codfisheries jrom tlie beginning oj tlieyear 1933 iolhe 15th of April, calculaled in Jully cured slate: Large Cod 26.827, Small Cod 6.977, Haddock 102, Sailhe 2í9, totat 3>i.l55 tons. Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson. Ríkisprentsmiöjan Gutenberg:

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.