Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1933, Blaðsíða 7

Ægir - 01.04.1933, Blaðsíða 7
ÆGIR 101 9. gr. Það telst ekki viðkoma í utlönd- um, er síldveíðaskip hefur samband við annað skip utan landhelgi, ef hið siðar- nefnda skipið hefur einnig greitt lögboð- in gjöld á íslandi á veiðitímanum, og hefur ekki siðar haft samband við út- lönd eða við önnur skip, sem beint eða öbeint hafa haft samband við útlönd eftir að hin lögboðnu gjöld voru innt af hendi. Sýna ber skilriki fyrir þessu frá skipstjóra hins skipsins. 10. gr. Nú varpar skip akkerum utan löggiltra hafna, og greiðast þá ekki op- inber gjöld ef skipið hefur ekki sam- band við land. 11. gr. Norsk fiskiskip, sem leita neyðarhafnar á íslandi, skulu að eins greiða venjuleg gjöld fyrir tollskoðun og heilbrigðiseftirlit, og hafnsögumannsgjald og hafnargjald og þvl. að eins ef um slík afnot er að ræða. 12. gr. Norsk fiskiskip, sem geta sann- að, að þau hafi rekið inn í landhelgi vegna straums og storms, skulu ekki sæta ákæru, ef það er Ijóst af öllum at- vikum, að þetta hafi ekki ált sér stað vegna stórkostlegs gáleysis eða ásetnings, i þeim tilgangi að veiða eða verka afl- ann innan landhelgi, enda sé þessu kippt i lag svo fljótt sem auðið er. 13. gr. Ef norskt fiskiskip vill ekki greiða sekt, heldur óskar að dómur gangi, skal skipinu þegar sleppt, gegn geymslu- Ijárgreiðslu, en ekki haldið þar til dóm- ur iellur. 2. kafíi. Innflutningurinn á söltuðu ís- lenzku kindakjöti til Noregs. 14. gr. Aðalinnflutningstollúrinn skal strax lækkaður niöur i lö.aura pr. kilo, að viðbættum venjulegum viðaukum, lyrir innflutningsmagn, er nemi allt að 13000 tunnum árið 1932—1933. 15. gr. Eins fljótt og unnt er, verður lagt fyrir Stórþingið frumvarp um lækk- un á aðaltollinum niður í lOaurapr. kg. og um heimild til þess að endurgreiða íslenzku rikisstjórninni mismun þess tolls, sem greiddur hefur verið, þ. e. 15 aura aðaltolli pr. kg., og tollsins samkvæmt nýja aðaltollinum, í báðum tilfellum með venjulegum viðaukum, og að því er snert- ir innflutningsmagn, er nemi 13000 tunn- um árið 1932—1933. 16. gr. Nýi aðaltollurinn, 10 aurar pr. kg., skal gilda framvegis um eftirfarandi innflutningsmagn af söltuðu íslenzku kindakjöti: a) Árið 1933—34 fyrir 11500 tunnur, en af þeim flytjist ekkert inn frá 1. júlí til 15. október, 8000 tunnur frá 16. okt. til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júni. b) Árið 1934—35 fyrir 10000 tunnur, en af þeim flytjist ekkert inn frá 1. júlí til 15. okt., 7000 tunnur frá 16. okt. til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júní. c) Árið 1935—36 fyrir 8500 tunnur, en af þeim flytjist ekkert inn frá 1. júlí til 15. október, 6000 tunnur frá 16. okt. til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júní. d) Árið 1936—37 fyrir 7000 tunnur, en af þeim flytjist ekkert inn frá 1. júlí til 15. október, 5000 tunnur frá 16. okt. til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júní. e) Árið 1937—38 og síðar fyrir 6000 tunnur, en af þeim flytjist ekkert inn frá 1. júlí til 15. okt., 5000 tunnur frá 16. okt. til 31. desember, og það, sem eftir er, frá 1. janúar til 30. júni. 3. kafti. Gildislaka og uppsögn. 17. gr. Samningur þessi gengur í gildi og endurgreiðslan.samkv. 15. gr. fe fram, þegar eftirfarandiskilyrði eru fyrir hendi:

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.