Ægir - 01.04.1933, Síða 14
108
ÆGIR
í febr. féllu í Kristians. 6 gró, í Bergen 3
í marz — - — 5 — - — 7
í ágúst — - — 61 — - — 13
í sept. — - — 285 — - — 13
okt.—nóv. - — 441 — - — 19
Skýringin á því hvers vegna tölurnar
fyrir Björgvin eru svo miklu lægri, er
auðvitað sú, að þar eru fiskgeymsluhús
ekki nema fá og langt á milli þeirra, en
í Krístiansund, eru þau þétt sarnan, og
allt í kringum höfnina. Annars sýnir
þessi athugun að lítið er um gróin að
vetrinum til, þegar myglan er á byrjun-
arstigi, en gróunum fjölgar eftir því sem
hún nær meiri þroska, og kemst í al-
gleyming þegar fiskurinn er hreyfður og
honum pakkað. t*ann 5. okt. féllu t. d.
2000 gró á einum degi á lófastórann
blett. Svarar það til þess, að 6 milljónir
gróa falli á 15 fermetra blett, eða lestar-
opið á venjulegu flutningaskipi.
Þessar rannsóknir hafa sannað það
tvimælalaust, að jarðslaginn nær að eins
þroska ef hann kemst í saltfisk, og að
lífsferill hans byrjar og endar með fisk-
inum verkuðum, en þangað kemst hann
með saltinu. Sýnist það því vera auðveld-
ast að eyða honum,ef gróin eru eyðilögð,
áður en þau komast í saltið.
Lagði Höye til, að fiskverkunarstöðv-
arnar og saltskipin væru sótthreinsuð
vandlega, til að hindra að gróin kaémust
í saltið. Trúði hann, að ef það væri gert,
mætti fljótlega eyða jarðslaganum að
mestu.
Ekki mun þó hafa orðið neitt úr fram-
kvæmd enn þá, þó allir munu vera á
sömu skoðun og hann um að gera þyrfti
jarðslagann landrækann, og þjóðin tap-
aði að minnsta kosti 200 þús. kr. hvert
ár, sem framkvæmdir dragast. En eins
og ofl vill verða, er langt bil á milli
orða og aðgerða. Ekki höfum við þó á-
stæðu til að harma aðgerðaleysi þeirra,
því óvissa sú, sem alltaf var á því hvort
norskur saltfiskur kæmi hreinn, eða jarð-
slaginn hefur'verið eitt af þvi, sem hjálp-
aði okkur til að komast svo fljótt inn á
Portúgalsmarkaðinn, sem raun varð á.
Þegar líf jarðslagans er athugað, skilja
menn hvernig stendur á, að venjulega
kemur brúni jarðslaginn fyrst fram á
hnakkanum á saltfiskinum, því hann
liggur í staflabrún, og er óvarinn fyrir
gróum þeim, sem berast um húsið með
hverjum súg. Hitt er einnig auðskilið, að
varasamt er að hreyfa fisk eingöngu til
að bursta hann, vegna þess að þá þyrl-
ast gróin um allt húsið, og setjast i fisk
sem ef til vill er ósmitaður fyrir. En
auk þess berst smitunin með burstanum
um allan fiskinn, og smitar hann, svo
að stundum má sjá jarðslagann i rákum
á fiskinum, sem munu beinlínis bursta-
förin. Meðan verið er að bursta í hús-
inu, er nauðsynlegt að þekja aðra fisk-
stafla sem bezt til að verja þá, en þvo
gólfin á eftir, en ekki sópa þau. Kanada-
menn reyna að hindra smitun, með því
að bursta fisk sinn i rennandi vatni, að
minnsta kosti meðan hann hefur ekki
fengið roikinn þurk.
Til að sótthreinsa hús, er stundum
notuð brennisteinssvæla, en sú aðferð er
ekki trygg, því húsin munu aldrei svo
loftþétt, að svælan haldist þar, en dýrt
að ganga svo frá þeim, að þau verði
nokkurn veginn loftþétt.
Bezta aðferðin til að útrýma brúna
jarðslaganum, er að þvo húsin og ann-
að sem smitun getur valdið, með forma-
líu blöndu. Hefur sú aðferð þann kost,
að hún eyðir bæði rauða og brúnajarð-
slaganum. Þarf fyrst að þvo húsin úr
hreinu vatni, og láta þau þorna einn
dag að minnsta kosti, þvi ef formalín-
blanda er notuð á blaut hús, þynnist
hún það mikið að hún verður gagns,-