Ægir - 01.04.1933, Side 15
ÆGIR
109
laus1. Svona blanda er ekki talin hættu-
leg mönnum, en hún spillir húðinnisvo
menn fá saxa undan henni, efmenneru
með hendurna niðri í henni. Erþvíbezt
að bera hana á með gólfþvögu. Einnig
má sprauta henni með samskonar sprautu
og notaðar eru gegn flugum, en það get-
ur verið varasamt, ef úðinn lendir í aug-
um manna.
Er því hezt að þvo úr blöndunni, en
þess þarf að gæta, að þvo öllflskgeymslu-
hús og saltgeymslur, áður en salt er sett
þangað, bæði á landi og í skipunum, og
einoig öll verkfæri og ilát sem notuð
eru við verkunina, kör og bursta jafnt.
og vetlinga og fiskábreiður.
Heldur hefur verið bjartara yfir salt-
fisksmarkaðinum undanfarið, þrátt fyrir
að neyzla hafi verið frekar lítil. Hefur
hún orðið mönnum vonbrigði, því venju-
lega eykst neyzlan á föstunni. Er því
kennt um hve vorið hefur vérið blítt og
gott, og því meira af grænmeti og fiski,
en venja er til, og verðið á þeim því
tágt. Samt hefur salan á fiskinum verið
nokkuð svipuð og undanfarna mánuði,
vegna þess, að innflytjendur hér í Bar-
celona, hafa selt all mikið af ódýrum
fiski til Madrid og Zaragoza. Venjulega
kaupa þessir bæir frá Bilbao, en þar var
heldur þurð á fiski, svo ódýrara var að
kaupa hann héðan. Losnuðu Barcelona-
menn þannig við mikið af fiski þeim,
sem var of harður fyrir markaðinn hér
°g ég hef verið að vandræðast um í fyrri
skýrslum mínum.
Verðið hefur verið mjög stöðugt und-
anfarið. Allir heildsalarnir vita að keppi-
oautar þeirra geta ekki selt fyrir lægra
verð en þeir, og munu þvi alls ekki
1) 300 gr. af formalíni, sem fæst i lyfjabúð-
um (40», blandað í 20 lítra af vatni.
láta fyrsta flokks fisk fyrir lægra verð
en 100 pes. vættina, en hezti norðan- og
austanfiskur er íyrir 108 og upp í 110
pes. vættin.
Birgðir eru taldar vera um 2000 lestir,
að meðtöldum farminum, sem kom með
Heklu, og má því telja, að hver fiskur
muni seldur hér í lok maimánaðar, og
einnig smáfarmar þeir, sem nú er von á.
Eru birgðir þessar um 900 lestum minni,
en á sama tima í fyrra. Er gott hljóðið
í innflytjendum, því þeir hafa grætt á
síðastliðnu ári, vegna verðfestingarinnar
á íslandi og mundu vera harðánægðir
með Fisksölusambandið, ef fiskurinn
hefði. ekki reynst ver en stundum áður,
þó það sé naumast hægt að kenna Sam-
bandinu um að svo skyldi fara. Munu
þó engir óska að það hætti störfum.
Frá Billbao hef ég svipaðar fréttir að
segja. Var haldinn fundur þar til að
ræða um að gera samband meðal inn-
flytjenda, og komu þar fram raddir um
að reyna að verzla fram hjá Samband-
inu. Ekki tóku neinir af stærri innflytj-
endunum undir það, enda sögðust þeir
vera ánægðir með viðskiptin. t*ó kvört-
uðu þeir undan að fá ekki alltaf þær
fisktegundir, sem þeir vildu fá, enda er
naumast hægt að búast við al-fullkomnu
skipulagi á svo erfiðum mal'kaði, síst
þegar það er myndað mjög íljótlega í
miðjum sölútíma. Varð árangur fundar-
ins því ekki annar, en að þeir sam-
þykktu að taka ekki kauptilboði Sam-
bandsins, og fengu því -nokkurn afslátt
á verðinu.
Um neyzluna þar er sama að segja
og hér, hún er með minnsta móti, þó
nokkuð stafi það sjálfsagt af þvi, að selt
hefur verið héðan til Madrid, en ekki
frá Bilbao. Verðhækkunin hefur þvi ekki
orðið jafn mikil og við var búist, og
sýnist sem sumir þar séu orðnir hræddir