Ægir - 01.10.1933, Page 3
ÆGIR
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
26. árg.
Reykjavík. — Október 1933.
Nr. 10.
Skýrsla
frá fiskifulltrúanum á Spáni.
Barcelona 28. septbr. 1933.
Avenida Victor Hugo, 4—5.
Fiskverðið er nú það sama og verið
hefur undanfarið, hér í Barcelona, 90—
94 pes. vættin af fiski að norðan ogaust-
an, en 86 fyrir Faxaflóafisk. Hefur hækk-
unin í framleiðslulöndunum jafnast á
móti falli enska pundsins, svo söluverð
hefur ekki hækkað í pesetum. Þegar fer
að kólna í veðri, verður löluvert af lé-
legum fiski, sendur héðan til Suður-
Spánar, og var send smásending í siðast
liðinni viku. Neyzlan er i bezta lagi,
enda þótt hún sé auðvitað ekki eins
mikil og hún var í sumar þegar hún var
mest. í Bilbao hefur verðið á islenzkum
fiski einnig staðið í stað, en hækkað dá-
lítið á færeyskum fiski síðustu vikurnar,
svo sem venja er til, þegar fer að kólna
í veðri. Er það nú 85 pes., en 79—80 á
íslenzkum fiski. Einnig hefur verðið
hækkað í Ítalíu, en fallið i Portúgal. Er
þvt kennt um, að fiskurinn þoli illa
geymslu og hafi skemmst af jarðslaga,
svo innflytjendur hafi orðið að losnavið
hann, þó þeir töpuðu á honum.
Horfurnar hér á Spáni og Portúgal
eru taldar mikið góðar. Sumarið hefur
verið jafnheitara en nokkurt annað sum-
ar í fjörutiu ár, og lengra, en ekki ofsa-
heitt. Hefur hitinn því ekki verið talinn
til skaða og telja menn að uppskeran
hafi verið góð, og útlitið með það sem
enn er óuppskorið. Sérstaklega er vin-
uppskeran talin góð bæði að vöxtum og
gæðum. Eru því vínbændur þegar farnir
að senda nefndir til stjórnarinnar um
að hún greiði fyrir sölunni. Koma sömu
fréttir frá Portúgal um uppskeruna þar.
Er sérstaklega talað um að olívu upp-
skeran sé góð, en hún er afar þýðingar-
mikil fyrir landið.
Svo sem menn vita hafa. New-found-
landsbúar haft nokkurn áhuga á því að
koma fiskimati á hjá sér. Fyrir tilstilli
saltfisk-úlflutningsnefndarinnar þar, hafa
nú verið gefin út lög um fiskimat þar í
landi, dags. 24. ágúst. Er þar algerlega
hannað að verzla með ómetinn fisk, og
skal þvi meta allan fisk, sem seldur er
bæði verkaðan og óverkaðan.
Tegundirnar eru tvær: shorefiskur og
egta labrador.
Shoreíiskurinn skal metastí fjóra ílokka:
a. úrvalsfiskur (choice): góður fiskur,
mjög þykkur, blæfallegur, sléttur á
yfirborði, og án of mikils salts, vel
flattur og þveginn, hvorki blóð né lit-
ur á þunnildum, né blóð í dálki.
b. útgengilegur (merchantable): góður
fiskur, sléttur á yfirborði, vel þveginn
og flattur, ekki með of miklu salti á
yfirborði og hvorki blóð né lifur á
þunnildum né blóð í dálki.
c. Fiskur fyrir Madeira: ósléttur fiskur
og sem ekki kemst í ofannefnda
flokka, en þó ekki ofsallaður fiskur,