Ægir - 01.10.1933, Page 6
236
ÆGIR
manna og útgerðarmanna hins vegar, er
sízt að örvænta um góðan árangur. Nátt-
úran hlýðir ákveðnum lögmálum, eigi
siður síldin en önnur dýr. Allt á sér
einhverja orsök. Aðalatriðið er að flnna
þann lið orsakakeðjunnar, sem við get-
um tekið föstum tökum og rannsakað
með hægu móti, og þaðan rakið keðjuna
þangað til við komum að þeim hlekk í
henni sem heitir slld.
Árni Friðriksson.
Hafnsögumenn í NewYork,
Þegar hin mildu farþegaskip hafa siglt
um 4000 sjómílur yfir Atlantshafið, á
leið sinni frá Norðurálfu til New-York,
fara þau að draga úr hraða, eftir því
sem þau nálgast höfnina. Á þeim skip-
um er lítið að óttast á opnu hafi, en er
nær dregur landi, fara mörg skip að
sjást og verða á vegi risaskipanna, þok-
ur eru tíðar og grynningar verður að
varast, eða með öðrum orðum, skipið
nálgast hættusvæðið. Alltí einu sézt lítill
bátur; róa honum tveir menn og rosk-
inn maður í gráum yfirfrakka situr aft-
ur í og reykir sá vindil. Skipið er þá
stöðvað. Hinn litli bátur leggur að því í
hlé, að kaðalstiga, sem hengdur hefur verið
á skipshliðina og þegar »lag« gefststekkur
sá frakkaklæddi í stigann og læsir sig lið-
lega upp eflir honum, en báturinn snýr
frá. Þetta er hafnsögumaðurinn, sem
leiðbeina á hinu mikla skipi inn á legu-
stað þess í New-York. Það var við Sandy
Hook að hann steig á skipið, hér um
bil 20 sjómllur út frá frelsisstyttunni og
siglir því svo um Ambrosesundið, þrengsl-
in (The Narrows) og þræðir leiðina milli
fjölda skipa; er reglan sú, að skip þau,
sem inn á höfnina fara eiga að vera að
austanverðu í farvatninu, en þau, sem á
útleið eru, að vestan, en þeirri fyrirskip-
un er eigi hlýtt sem skyldi og við það
vandast málið.
Kjör þessara hafnsögumanna eru ekki
girnileg fyrir áhugasama unga menn.
Lærdómstíminn er langur og þyrnum
stráður og árstekjur eru milli 200—350
dollarar fyrstu árin.
Sérhver sá, sem vísar skipi veg inn á
höfnina í New-York, verður að vera í
félagi því sem heitir »The United New-
York and New-Jersey Sandy Hook Pilots
Association«. í félagi því eru að eins 125
menn (lóðsar), 86 frá New-York og 39
frá New-Jersey.
Hver sem vill, getur mælt með ung-
um manni, sem langar til að gerast hafn-
sögumaður, en oftast og áhrifamestu
meðmælin koma þó frá einhverjum í
áðurnefndum félagsskap. Umsækjandi
verður að hafa góða menntun, vera á
aldrinum 17—20 ára og umfram allt að
hafa góða sjón.
í byrjun er lærlingur að mestu á öðru
hvoru hinna tveggja smáskipa, sem fé-
lag hafnsögumannanna á. Þau halda sér
ávallt við Sandy Hook og má kalla þau
heimkynni hafnsögumanna, því þaðan
fara þeir í skip þau, sem eru á innleið
og þangað fara þeir frá þeim, sem á út-
leið eru.
Hið fyrsta sem byrjendur læra erhrein-
læti á skipsfjöl, þrifa þilfar, þvo máln-
ingu og mála, fága látún o. sv. frv. Síð-
ar vinna þeir í smábátum þeim, sem
flytja hafnsögumenn til skipa eða sækja
þá. Þegar þeir hafa unnið þannig í 8—
10 ár, þá er kaupið komið uppi40doll-
ara á mánuði, þá er talið að maðurinn
sé fullnuma og getur úr þvi sótt um
hafnsögumannsstöðu. Til þess að ganga
úr skugga um hæfileika hans og þekk-