Ægir - 01.10.1933, Qupperneq 7
ÆGIR
237
ingu, eru tveir rosknir og reyndir hafn-
sögumenn skipaðir til að spyrja hann
spjörunum úr um allt, er að starfinu
lýtur. Standist hann þetta próf og sésvo
langt kominn, geta enn liðið 13 ár þang-
að til hann fær réttindi til að leiðbeina
skipum, á stærð við »Mauretania«, til
hafnar.
Þegar hann fær hin fyrstu réttindi sem
hafnsögumaður, er hann orðinn um 27
ára gamall, en langt og örðugt starf er
framundan. Hafnsögumaður getur látið
af störfum þegar hann er 65 ára, en
verður að hælta er hann er sjötugur. Sá
sem þessa föstu atvinnu fær, er mjög
varkár í starfi sínu og reynir allt til að
missa hana ekki fyrir handvömm, en
þrátt fyrir það geta óhöpp borið að hönd-
um og gera, en beri svo undir, er hið
fyrsta verk hafnsögumanns að gefa ná-
kvæma skýrslu um atburðinn, því oftast
ræður hún, hvernig á hann er litið.
Hið versta, sem hafnsögumann getur
hent er, að réttindi hans séu að öllu frá
honum tekin, en í manna minni hefur
það ekki verið gert. Hin almenna refs-
ing fyrir afglöp er réttindamissir tiltekinn
tima, sem fer eftir atvikum og meira en
réttindamissir í eitt ár þekkist ekki til
þessa. Að eins einn hafnsögumaður hef-
ur fengið þann dóm og hafði sá starfað
í 14 ár, en vegna hins mikla álits, sem
hann naut almennt, var tíminn færður
niður i 6 mánuði. Hafnsögumenn taka
gjald eftir stærð skipa (lestatali). Því
stærra sem skipið er, því meira fær hafn-
sögumaður og t. d. kostar að leiðbeina
risaskipinu »Leviathan« (54.282 tons) til
og frá höfninni í New-York, 320 dollara.
Skrifstofur Fiskifél. tslands voru fluttar
í hið nýja hús Fiskifélagsins, laugardag-
inn 28. október.
Frá Noregi.
Ástandið í heiminum virðist ekki fara
batnandi hversu sem menn reyna að
komast út úr ógöngunum.
Tollhækkanir oginnflutningshöft draga
úr viðskiftum þjóðanna en menn vona
þó, að þessu linni.
Saltfiskur. Markaðsverð er stöðugt, en
lítið af fiski selst. Verð á saltfiski nr. 1
samsvarar 75 kr. ísl. fyrir skpd.
Lýsi. Þrátt fyrir mikinn útflutning og
minnkandi birgðir, er eftirspurn á heima-
markaðinum lítil og verð lækkandi. Þó
má vænta mikillar eftirspurnar bráðlega
og vona menn, að birgðir seljist, en þeir
sem þær eiga, vilja ekki lækka verð fyr
en í síðustu lög. — Gufubrætt Lofoteu-
lýsi er nú selt fyrir 85 norskar kr. tunna,
en fyrir það verð eru menn tregir að
kaupa. Lakari tegundir ganga betur út.
Hrogn. Sardínuveiðar við Frakkland
eru nú að hætta. Útflutningur hefurver-
ið mikill, einkum af nr. 2 og 3, en minni
eftirspurn eftir nr. 1, en af þeirri tegund
eru miklar birgðir. Þrátt fyrir miklar
sardínuveiðar hefur verð á hrognum ver-
ið óvanalega lágt.
Kjöt. ístenzkl saltkjöt hefur selst á 82,50
norskar krónur tunnan og nokkur þús-
und tunnur verið seldar. Reynt hefur
verið að halda því í 85 norskum krón-
um, en það sem af er, gengur það ekki
út fyrir það verð. a/u> 1933.
Fiskveiðar Færeyinga við Grænland.
Færeyjaskipin eru nú komin heim frá
fiskimiðunum við Vestur-Grænland. 52
skip stunduðu þar veiðar og lögðu upp
aflann í Færeyingahöfn. Hann var sam-
tals 2.213.000 þorskfiskar og er fluttur
til eyjanna.