Ægir - 01.10.1933, Síða 19
ÆGIR
249
Skýrsla nr. 3
frá erindrekanum í Norðlendingafj.
Efni til skýrslugerðar eftir 3 siðustu
mánuðina er harla lítið annað en það,
sem þegar hefur verið birt í tímaritinu
»Ægi«, svo sem um síldaraflann í hin-
um ýmsu veiðistöðum, þorskafla ifjórð-
ungnum o. s. frv. og virðist ekki þörf á
að endurtaka það hér.
Snemma í júlímánuði dró það mikið
úr fiskaflanum, að i sumum veiðistöðv-
unum var róðrum hætt alveg, eða að
mestu leyti, svo sem á Siglufirði, í ól-
afsfirði, Hrísey og á Árskógsströnd, enda
sneru menn sér þá almennt að fiskverk-
uninni og sumir að síldveiðum. Þó gengu
nokkrir trillubátar að einhverju leyti all-
an tímann.
1 austur-veiðistöðvunum, Þórshöfn,
Raufarhöfn, svo og í Flatey og Grímsey
varð aflinn mjög rýr. Fiskurinn hélt sig
mest á það djúpu vatni og fjarri, að
trillubátarnir gátu ekki sótt í hann, enda
oftast fremur ókyrt til hafsins þótt veðr-
átta væri stillt og góð til landsins, en á
þessum stöðvum eru mestmegnis opnir
bátar. — Sömu sögu er að segja úr vest-
ur-veiðistöðvunum, Skagafirði og Skaga-
ströndinni með Kálfshamarsvík, að þar
hefur eftirtekjan orðið mjög litil.
Hér við Eyjafjörð og á Siglufirði var
byrjað aftur á róðrum, er síldveiðinni
var lokið, eu aflinn var fremur tregur
fyrst í stað, en góður fiskur, það sem
fékkst. En er á leið seplember tók afl-
inn að glæðast. Fluttu þá margir bátar
til Siglufjarðar, að vanda, en gæftir hafa
verið stopular síðan og því minna kom-
ið á land en vænta hefði mátt. Ég geri
ráð fyrir að i flestum veiðistöðvunum,
utan i Siglufirði, sé nú búið að vera með
róðra í þetta, sinn svo teljandi sé.
Nokkur hafsíldarreitingur hefur verið
hér út í firðinum, og hefur það farið
mestmegnis í beitu, og ef til vill eitt-
hvað lítið í frystingu. Þá hefur og feng-
ist nokkuð af millisild og smásíld, einn-
ig í net, fram á þenna dag og mun vera
útflutt af þeim tegundum 608 tn. milli-
síld og 5612 tn. smásild og eitthvað lít-
ilsháttar er nú fyrirliggjandi, og mun ég
gefa Fiskifélaginu skýrslu um útflutn-
inginn jafnóðum og hann fer fram, því
örðugt er að fylgjast nákvæmlega með
vikulegum afla, þar sem sumir fiski-
mennirnir salta sjálfir. Annars er milli-
síld seld og keypt nú fyrir 10 kr. manna
á milli, en hafsíld hefur verið seld til
beitu fyrir 18 kr. tn.
Athyglisverðan viðburð má það telja,
að nú hafa Ólafsfirðingar komið upp hjá
sér dráttarbraut fyrir vélbáta sína, er
rúmar samtimis 10 báta. Er þetta til
stórra framfara og hagræðis fyrir veiði-
stöðina, enda eru ólafsfirðingar atorku-
og dugnaðarmenn um allt er að sjávar-
útvegi lýtur. Áður höfðu þeir komið sér
upp vönduðu vélaverkstæði og frystibúsi,
auk hinnar rammgjörvu bryggju. Allt
þetta hefur gerbreytt aðstöðu þeirra og
framtiðarmöguleikum.
Þegar ég gaf siðustu skýrslu mína.var
mér ekki fullkunnugt um bátatölu er til
fiskjar mundi ganga af Skagaströndinni,
í sumar, og henni því bætt hér við. —
Flest hafa gengið 13 opnir vélbátar með
4 manna áhöfn, og er aflinn talinn að
vera orðinn 84 tonn af verkuðum fiski,
móli 130 tonnum alls í fyrra, en þá
voru bátarnir 3 fleiri.
Eg hef ekki enn getað náð saman öll-
um birgðum af frosinni beitu i fjórð-
unginum, en mun senda skýrslu um
þetta síðar, og þá að líkindum miðað
við 1. nóv., ef sildarreitingi þeim er nú
er, verður lokið, sem telja má sennilegt.