Ægir - 01.10.1933, Qupperneq 20
250
ÆGIR
Um ferðalög min seinni helming árs-
ins, svo og um ástand fiskifélagsdeild-
anna hér, mun ég skrifa í lokaskýrslu
minni fyrir þetta ár, um Ieið og ég gef
heildaryfirlit, eins og að undanförnu. —
Sildarbræðslurnar á Raufarhöfn og í
Krossanesi, segjast hafa sent Fiskifélag-
inu skipaskrár.
Akureyri 17. okt. 1933.
Páll Halldórsson.
Takmörkun á fiskútflutningi
til Stórabretlands frá Noregi, byrjaði
laugardaginn 14. okt. 1933 kl. 12 á há-
degi.
Hinn 11. október skýrir fiskimálastjór-
inn norski svo frá:
Verzlunarmálaráðuneytið hefur nú,
samkv. lögum frá 6. júlí 1933 og kon-
unglegri staðfestingu 28. júlí s. á., gefið
út fyrirskipanir áhrærandi útílutningi á
nýjum fiski til Stórbretalands frá Noregi.
Til ársloka er fyrirboðið að flytja út,
löngu keilu, upsa, karfa og steinbít.
Til ársloka er fyriiboðið að flytja út
kola minni en V* kilo, lúðu minni en
ll/» kilo og stærri en 60 kilo, með haus
og 50 kilo hauslausar. Ýsu yfir U/2 kg.
og ekki minni en 600 grömm með haus,
skötu og skötubörð af fiski, sem allur
vegur yfir 15 kilo. Af háf má flytja út
50 lestir (ton). Frysta lúðu má að eins
flytja út, að fengnu leyfi fiskimálastjór-
ans. — Þessar reglur ganga í gildi hinn
14. október, kl. 12 á hádegi, en þó þann-
ig, að sé frá fisksendingum til Bretands
gengið á útflutningsstaðnum fyrir hinn
ákveðna tíma, þá er leyfilegt að flytja
þær út.
Nýtt varðskip.
Hinn 23. september, var hinu nýja
danska varðskipi hleypt á sjóinn og er
nafn þess »Ingólf«. Það er með sama
lagi og varðskipið »Hvidbjörn«, sem hef-
ur verið hér og við Grænland og verð-
ur »Ingolf« látinn annast strandgæzlu
hér og við Grænland og kemur í stað
»Fylla«. Skipið er 70 metrar á lengd og
1325 tonn.
Fiskútflutningur Svía til Englands.
Svíar hafa nú selt allan þann lisk í
Englandi, sem samningar leyfa og geta
þvi ekkert selt þar, fyr en í byrjun jan-
úarmánaðar næsta ár.
1 atvinnuleysi því, sem almennt rikir,
horfir nú til vandræða.
í sumar stunduðu 160 bátar veiðar í
Norðursjónum og seldu fisk í Englandi,
en nú er sú verzlun hætt og mikill hluti
flotans er hættur veiðum. Þó stunda
margir bátar þær enn og vona að geta
selt Dönum fisk, en að öllum líkindum
munu Danir hætta að kaupa fisk af út-
lendingum, því ekki eru fiskimenn þeirra
of vel stæðir.
Hin mörgu fiskiskip Svía, sem stunda
veiðar í Norðursjónum, eru sterk og
mikil veiðiskip, sérstaklega smíðuð til
flutninga á fiski til Englands. 1 stað þess
að geta verið að veiðum til nýárs, hætta
þau nú og það sem þeim er leyfilegt að
selja af fiski til Englands, er ekki meira
en það, að á fáum vikum ársins geta
þeir fullnægt því.
Fiskúrgangur hækkar í verði.
Sökum litilla birgða hefur verð á fiski-
mjöli hækkað, einkum í Liverpool. Eft-
irspurnin er mikil. Fyrir fiskimjöl, sem
inniheldur 7°/o af köfnunarefni og 5%
af fosforsýru er verð skráð í Liverpool,
9 sterlingspund fyrir hvert tonn, f. o. b.
Mikil eftirspurn er eftir fiskimjöli, sem
örðugt virðist að fá til hænsnafóðurs, en
það á að innihalda 60% af eggjahvítu-