Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1946, Blaðsíða 12

Ægir - 01.08.1946, Blaðsíða 12
202 Æ G I H Ur skýrslu fiskveiðanefndar F. A. O. í Quebec. ú....................................................................Ú Á ráðstefnu þeirri, sem haldin var i Hot Spring 1943, var fijrir atbeina Roosevelts Bandarikjaforseta komið á fót stofnun, er á ensku kallast „Food and Agricultural Organisation“ og gengur jafnun undir skammtöfuninni F. A. 0. Þessi matvæla- og landbúnaðarstofnnn hélt ráðstefnu i Quebec í Iíanada seint á ári (okt.—nóv.) 1945. Thor Thors sendilierra mætti þvr sem fulltrúi fgrir hönd Islands, og var hann kosinn formaður nefndar þeirrar, er fjallaði um fiskveiðimálefni. F. A. 0. efndi til ráðstefnu nú í september og að þessn sinni í Kaupmannahöfn. Davið Ólafsson fiskimála- stjóri mætti þar sem fulltrúi íslands. Grein sú, sem hér fer á eftir, er lauslcg þijðing af hluta úr skýrslu þeirri, er sjávarútvegsnefndin á F. A. 0. i Quebec samdi. ☆.........................................—..........................☆ Eftir heimsstyrjöldina fyrri urðu miklar iramfarir í niðursuðuiðnaðinuin. Vegna aukinnar lækni var hægt að framleiða holl- ari niðursuðuvörur og vegna hetri vélaút- búnaðar var hægt að afkasta meira hverja vinnustund. Einkum átti þetta við þá grein iðnaðarins, er sauð niður lax. Á sama tíma varð óhægra um öflun hrá- el'na vegna ákvarðana um l'riðun á fiski. En þar sem niðursuðuverksmiðjum fjölgaði stöðugt jókst samkeppnin um liráefnið. Þessi samkeppni hafði í för með sér nýjar endurbætur á veiðarfærunum. En óhjá- lcvæinileg afleiðing þess var stytting veiði- límans. Það hafði aftur í för með sér, að til- kostnaðurinn var of mikill miðað við lengd veiðitímans. Samtimis verkaði samkeppnin um hráefnið í öðrum hlutum heims þannig, að verðið féll á vörunni fullunnri. Vegna alls þess, sem hér hefur verið nefnt, var nauðsynlegt fyrir niðursuðuiðnaðinn að koma við frekari sparnaði, en því varð lielzt komið i kring með því að fá hraðvirkari vélar, er færri menn þurfti að vinna við en þær eldri. Mikil framför átti sér stað í meðferð á nýjum og ísuðum fiski, þegar byrjað var á að flaka fiskinn. Áður fyrr var mestur liluti fisksins sendur á markað flattur eða í heilu líki. En með því að flaka fiskinn fær neyt- andinn einungis heinlausan hita. Upphaf- lega voru flökin flutt lít ísuð, en síðan hyrjuðu menn á að frysta þau, setja þau í sérstakar umbúðir og senda þau á markað með kæluskipum. Margir urðu til að taka npp þessa nýju framleiðsluaðferð. Fyrir at- beina matsölustaða og bæjarmötuneyta reyndist auðvelt að auka markaðinn fyrir jjessa framleiðslu. Flutningskostnaðurinn á þessari vöru var að tiltölu lægri en á öðrum vörutegundum, þar sem eingöngu var uni jnat að ræða. Úrganginum var safnað saman á sérstaka staði, þar sem liægt var að vinna ur honum fiskmjöl og olíur. Þessi iðnaður jókst að ráði á árununi milli styrjaldanna. Fiskmjöl var þá farið að nota sem skepnufóður, en það hafði áður aðeins verið notað til áburðar. Þar sem fisk- mjöl hefur að geyma all mikið af eggja- hvítuefni ásamt ýmsum steinefnum, er það

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.