Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1946, Page 33

Ægir - 01.08.1946, Page 33
Æ G I R 228 Fa rþegatryggingar í lofti og legi. Fiskveiáaréttindi Japans á rússneskum hafsvæðum. í I. hefti danska timaritsins „Ökonomi og holililt1* árið 1945 birtist útdráttur úr grein, er snertir fiskveiðaréttindi Japana á rússn- eskum yfirráðasvæðuitt. í kafla, sem heitir ..Japan og Rússland“ segir meðal annars: Meðal þeirra ákvarðana, sem voru' í i'ússnesk-japanska sáttmálanum, er gerður var 1925, var Japan veitt þýðingarmikil fiskveiðaréttindi á fiskveiðasvæðum við Austur-Síberíu. Þessar ákvarðanir gengu 1 gildi með fiskveiðasáttmálanum, sem gerður var í Moskva 23. janúar 1928 og áttu ;ið gilda til 27. maí 1936. En á þessu tíma- bili, eða í desember 1931, vék Japan frá gullgengi og verðrýrnun japanska vensins hafði í för með sér fjárhagslegt tap fyrir Sovetríkin. Vegna þessara aðgerða fóru Rússar fram á skaðabætur við Japana, en þeim var hafnað. Á þessum árum myndað- isl sama ástand í fiskveiðum heimsins og í olíuframleiðslunni, þ. e. a. s. að fiskiðnaður Rússa óx hröðum skrefum, og árið 1935 var Rússland orðið mesta fiskveiðaþjóð heims- ins, að Japönum undanskildum. Hlutdeild Rússa í þeim afla, sem þeir veiddu á fiski- slóðum, er voru sameiginleg fyrir þá og Japani, óx úr 12,7% 1928 í 44% 1934. Jap- anir byrjuðu þá að skoða Rússa sem hættu- legan keppinaut um framtíðarmarkað fyrir niðursoðið fiskmeti. í nóvember 1936 gerðu þessar þjóðir þó með sér sáttmála, sem þótti harla einkennilegur. Hann átti að gilda í 8 ár. En einmitt í sama mund og þessi samn- ingur átti að fá staðfestingu varð Ijóst um andkommunistiska samkomulagið, er Jap- anir höfðu gert við Þjóðverja. Það hafði þau áhrif, að Rússar neiluðu að skrifa undir fiskveiðisáttmálann, en gengu hinS vegar inn á að framlengja um stundar sakir

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.