Ægir - 01.07.1947, Síða 8
Æ G I R
1<1()
Iljöni Benediktsson nélselj-
ari i Gutenberg.Hann he/tir
scll bladið i nokkur ár og
gerir enn. — Björn lie/ur
slarfad 37 ár i Gulenberg
og cr þvi ncestum jafn
gamall þar og .Kgir.
i eigu i'élagsins, annaðist Matthias ritstjórn
þess.
Af sögu þeirri, sein hér hefur verið rakin
um upphaf ritsins, má glögglega marka, að
eigi hefur Matthiasi gengið annað til i bar-
áttu sinni fvrir að koma ritinu á stofn og
halda þvi liti en einber áhugi fyrir að fræða
landsinenn um þau mál, er snerta sjávar-
útveginn. Honum duldist ekki, að sú starf-
semi gat haft veigimikil áhrif fyrir fram-
þróun íslenzkrar útgerðar. Hann hafði
kynnt sér, hversu þessu var háttað í ná-
grannalöndum okkar og hann vildi ekki ís-
lendinga síðri í þessum efnum. Vafasamt er,
að margir íslendingar hafi verið betur til
þess fallnir að taka að sér stjórn slíks rits,
þegar Ægir hóf göngu sina. Matthías var
um þær mundir óefað ritfærasti maður í
isl. sjómannastétt, hann hafði, vegna ferða-
laga sinna á varðskipunum, óvenju góða
aðstöðu til að fylgjast með sjávariitvegi
landsmanna og hann hafði gert sér far um
að kynnast þeim breytingum, sem voru að
verða i útgerð annarra þjóða. Um ritstjórn
Matthíasar er það að segja, að hún reyndist
svo sem menn gerðu sér vonir um. Þólt
Matthías hefði aldrei koinið nærri ísl. sjáv-
arútvegi að öðru en því, að hefja útgáfu
Ægis og stjórna honuin fyrstu sex árin,
mundi lians ætíð við getið í fiskveiðasögu
Jandsmanna. Kn þvi fer viðs fjarri, að liann
hafi sinnt Ægi einum, þvi að enginn ís-
lendingur hefur ritað meira um fiskveiða-
mál en hann, bæði á íslenzku og erlend mál.
Hann hefur einnig gefið út fiskveiðirit á
ensku og dönsku. (North Atlantic fisheries
vearbook og Nordisk Havfiskeri Tidskrift.)
Þótt Matthías sé orðinn hálfáttræður og hafi
i tugi ára dvalizt erlendis, er áhugi hans fyrir
islenzkum sjávarútvegsmálum jafn brenn-
andi og fyrr. Er ritlingur sá, um landhelgis-
mál íslendinga, sem hann sendi frá sér sið-
astl. ár, glöggur vottur þess.
Með hyrjun árs 1914 tók Sveinbjörn Eg-
ilson við ritstjórn Ægis og hafði hana á
hendi i 23 ár. Sveinbjörn var ágætlega rit-
fær og hafði meiri revnslu sem farmaður en
nokkur annar íslendingur. Þegar hann tók
við ritinu, skipti það nokkuð um svip, því
að hann hafði meiri áhuga á að rita um far-
mennsku og slysavarnamál en fiskveiðar.
Sá, er þetta ritar, hefur senn haft ritstjórn
hlaðsins á hendi í 10 ár. Er það fátitt hér á
landi, að rit, sem náð liefur slikum aldri
sem Ægir, skuli hafa notið jafn fárra lostra
og liann. Enn fátiðara mun það teljast, að
hann skuli alla tíð hafa verið prentaður í
sömu prentsmiðju.