Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1947, Blaðsíða 13

Ægir - 01.07.1947, Blaðsíða 13
Æ G I R 195 Vetrarvertíðin í Sunnlendingafjóráungi 1947. Yfirlit J>nð yfir vetrarvertíðinn i SunnlendingaJJórðiingi árið Wál birtist að Jiessu sinni síðar en nokkrn sinni áður, en til þess liggja gildar ástæður. Eins og yfirlitið yfir vertíðina 194-6, sem birtist í maíblaði það ár, ber með sér, bafði verið gerð tilraun til að afla upplýsinga um róðrafjölda og mánaðarafla hvers báits i verstöðvum fjórðungsins og var þeirri viðleitni vel á veg komið. Til þess að þetta mætti takast til fullnustu að þessu sinni ng upplýsingarnar lægju fgrir þegar að vertið lokinni, var forsvarsmanni Iwers báts afhent skýrsluform i þessu skgni, þegar í bgrjun vertiðar. Var þess því vænzt, að skýrsluformin grðu tilbúin útfglll þegar i vertiðar- lok. En allt fór þetta á aðra leið, því að þan heimtust i'ir mörgum stöðum bæði seint og illa, þrátt fgrir ítrekaðar tilraunir til þess að ná i þau. Sjálfar bera skýrslurnar það með sér hvar misbrestasamast hefnr orðið i þessum efnum. Er sýnilegt, að enn verður að gripa til nýrra ráða, ef ekki á að láta lönd og lcið um gagnasöfnun í mikilvægum þætti sjávariítvegsins. I>ess skal getið, að aflinn er alls staðar miðaður við slægðan fisk með hans. Lifraraflinn er alls staðar miðaður við litra nema í Vestamannaegjum, þar cr hann miðaður við kg. Ég vil að lokum flgtja öllum þeim, sem á einn eða annan hátt hafa aflað upplýsinga i gfirlit ]>etta, bezta þakklæti. L. K. Hornafjörður. Vcrtíðin í Hornaiirði byrjaði almennt uin mánaðainótin janúar og febrúar. Að l>essn sinni lauk henni með fyrra móti, og voru aiiir aðkomubátar farnir þaðan 10. mai. Þrettán bátar stunduðu veiðar að stað- nldri frá Hornafirði í vetur. Fer bátum æ fækkandi, sem viðlegu hafa þar yfir vertíð- ina. Árið 1946 voru jieir 18, en 35 árið 1945. Á síðastl. vertíð veiddu allir bátarnir með linu. Bátar þeir, sem reru frá Horna- iirði í vetur, voru frá eftirtöldum stöðum: -Norðfirði 5, Seyðisfirði 3, Eskifirði 3 og Hornafirði 2. Meðalróðrafjöldi bátanna yfir vertíðina 'ar 51, og er það þrem róðrum meira en var að meðaltali 1946. Mest voru farnir 62 róðrar (60) og skiptast þeir þannig eftir mánuðum: Febrúar 19, rnarz 22, apríl 11 (>g 10 i maí. í febrúar og marz voru ein- muna góðar gæftir, en fremur slæmar í npríl og maí. Afli var ágætur í febrúar og marz, en ekki nýttist að honum sem skyldi, því að bálar urðu fyrir frátöfum vegna saltskorts og ónógrar fiskgeymslu. Enginn kostur var á að bæta úr fiskgeymsluleysinu með öðr- um hætti en að flytja fiskinn austur á land. í apríl og maí var frekar tregur afli. Að meðaltali fékkst um 4600 kg á bát i róðri. Alls kom á land í verstöðinni um 3294 smál. af fiski og um 284 þús. litrar af lif- ur. Vélbáturinn Marz frá Norðfirði fékk mestan afla, 327 smál. af fiski og 28 þús. ! af lifur í 58 róðrum. Þessi sami bátur var einnig aflahæstur 1946 og fékk þá um 466 smál. í 56 róðrum. V/b Marz er 15 rúml. að stærð og er Ármann Magnússon í Neskaup- stað eigandi hans. Óli Sigurður Jónsson hefur verið formaður á Marz undanfarnar þrjár vertiðir og jafnan verið aflaliæstur. Aflinn var allur saltaður. — Úr lifrinni fékkst 621 fat af lýsi. Loðna veiddist ekki til beitu og var því eingöngu notuð síld. Alls voru notaðar lil beitu 2300 tn., en það

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.