Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1947, Blaðsíða 28

Ægir - 01.07.1947, Blaðsíða 28
210 Æ G I R Hagnar Jónsson, Itafnai firdi. FramluiWl af síöu 207. slöðvuni við Flóann. Mest voru farnir 88 róðrar (95) á vertíðinni og skiptast þeir ])unnig eftir ninnuðum: Janúar 12, febrúar 24, marz 29, apríl 19 og 4 í maí. Framan af vertíðinni var afli heldur Iregur. Nokkrir bátar reru ]>á vestur undir Jökul og fengu þar góðan afla, en tvo daga voru þeir í róðrinum. V/b Björg frá Eskifirði og Hafbjörg úr Hafnarfirði fengu mestan afla. Afli Bjarg- ar varð 605 smál. af fiski og 39 þús. 1 af lifur i 76 róðrum, en afli Hafbjargar varð 604 smál. af fiski og tæplega 42 þús. 1 af lifur í 88 róðruiu. Skipstjóri á Björgu er Þórlindur Magnússon frá Eskifirði, en á Hafbjörgu Ragnar Jónsson í Hafnarfirði. Á vertiðinni 1946 fékk aflahæsti báturinn 756 smál. af l'iski og um 48 þús. 1 af lifur i 95 róðrum. Afli sá, sem á land kom í Hafnarfirði á vertíðinni, nam um 7945 smál. af fiski og 555 þús. 1 af lil'ur. Heiinildarmaður: Jón Halldórsson, utgerðar- nviður i Hafnarfirði. Reykjavík. Hvergi á landinu hefur vélbátaúlgerð farið eins í vöxt á undanförnum árum sem i Reykjavík. A síðastl. vertíð tvöfaldaðist tala þeirra vélbáta, sem reru frá Reyltjavik, miðað við vertíðina 1946, og er þar því orð- in stærsta vélbátaverstöð landsins, að 5'estmannaeyjum undanskildum. Að þessu sinni stunduðu 16 bátar línu- veiðar, og hóf belmingur þeirra veiðar í janúar, cn hinir í febrúar, að þremur und- anskildum. Fjórir af bátum þeim, seni linuveiðar stunduðu, voru aðkomnir. Línu- veiðum lauk í fyrstu viku maímánaðar. Mest voru farnir 77 (76) róðrar með línu, og skiptist róðrafjöldinn þannig eftir mán- uðum: Janúar 7 (10), febrúar 25 (17), marz 26 (23), apríl 15 (21) og maí 4 (5). Eins og róðrafjöldinn gefur til kynna, voru gæftir yfirleitt góðar, eða svipaðar og 1 öðrum veiðistöðvum við Faxaflóa. Afli var naúmlega í meðallagi. Af línu- bátunum fékk v/b Dagur mestan afla, 468 smál. af fiski og um 31 þús. lítra af lifur í 78 róðrum. A vertíðinni 1946 fékk afla- Jiæsti línubáturinn 605 smál. af fiski og 35 þús. 1 af lifur í 76 róðrum. — V/b Dag- ur er eign hlutafélagsins Dags í Reykjavík, en skipstjóri á honum er Annilíus B. Jóns- son úr Reykjavík. Fyrstu tvo mánuði ársins stunduðu flestir hinna stærri báta úr Reykjavík, sem ekki voru á línuveiðum, síldveiðar í berpinót eða botnvörpu. Var sá fengur óvenjulegur, en alls aflaðist um 12000 smál- af síld í nánd við Reykjavík. — Þegar síld- veiðunum lauk tóku bátarnir til við botn- vörpuveiðar, en alls stunduðu 15 bátar þær veiðar, en 4 árið 1946. Mestan afla af botn- vörpubátunum fékk v/b Marz, alls um 406 smál. af fiski og' um 20 þús. I af lifur. A vertíðinni 1946 féldc aflahæsti botnvörpu- báturinn 264 smál. AIIs kom á land af Reykjavíkurbátum á þessari vertíð um 9230 smál. af fiski (auk síldar) og 579 þús. lítrai' af lifur. En á vertíðinni 1946 5345 smál. af fiski. Heimildarmcnn: Utgcrðarmenn í Reykjavik. Akranes. Frá Akranesi reru 22 bátar síðastliðna vertíð og er það sami bátafjöldi og á ver- tíðinni 1946. Einn af þessum bátum gat ckki byrjað róðra fyrr en í marzlok, en það var „Böðvar“, hinn nýi og' stóri bátur Har- aldar Böðvarssonar & Co. Vertíð hófst 6. janúar og slóð yfir lil 15.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.