Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 6
F iskir æktar stöðin
á Öxnalæk
Þegar fiskiræktarstöð Tungulax hf. á Öxnalæk
var formlega opnuð, flutti Eyjólfur Konráð Jóns-
son ávarp það, sem liér fer á eftir.
Á þessu ári eru 5 ár liðin síðan hlutafélagið
Tungulax var stofnað, en rúmur áratugur er
síðan þeir félagar prófessor Snorri Hallgríms-
son, Kristinn Guðbrandsson og Oddur Ólafs-
son hófu tilraunir til fiskeldis og byggðu litla
fiskiræktarstöð að Keldum. Þeir hófu og fiski-
rækt á Skaftársvæðinu og gerðu ræktunar-
samning um Eldvatn í Meðallandi.
Aðalhvatamaðurinn að stofnun Tungulax
hf. var Snorri heitinn Hallgrímsson, sem af
eldlegum áhuga vann að fiskiræktarmálum
öllum stundum, sem hann gat varið frá erfiðu
prófessors- og læknisstarfi, og var hann fyrsti
framkvæmdastjóri félagsins.
Stjórn Tungulax hf.: Frá v.: Guðm Hjaltason,
Þuríður Finnsdóttir, Kristinn Guðbrandsson, Eyj-
ólfur Konráð Jónsson og Dýrfinna Jónsdóttir.
Tungulax hf. hefur haldið áfram rekstri
fiskiræktarstöðvarinnar að Keldum og lítils
tilraunahúss á Öxnalæk, sem þeir Snorri Hall-
grímsson og Kristinn Guðbrandsson reistu
vorið 1969. Þá hefur félagið haldið áfram rækt-
un í Tungulæk og Hæðarlæk í Landbroti, og
ræktun Eldvatns í Meðallandi, sem er ein
stærsta bergvatnsá landsins.
Við Hæðarlæk hefur félagið reist 360 fer-
metra eldishús og eru þar gerðar tilraunir með
lax og sjóbirting, sem m. a. er sleppt beint úr
húsinu út í læk í von um endurheimtu, en sá
fiskur sem til baka kemur, er fyrst og fremst
notaður sem klakfiskur.
í Eldvatn hafa nú verið sett nær 100 þús.
gönguseiði, og er ræktunin þar byrjuð að
bera árangur. 1971 veiddust þar 40 laxar, 1972
60 og á s.l. ári 100.
Eyjólfur Konráð Jónsson flytur ávarp við opnun
stöðvarinnar.
ÆGIR
102