Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 8

Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 8
Um þróun fiski ræktar í Japan Grein þessi er eftir Dr. P. H. Milne. Hann er verk- fræðingur að mennt, og kennir vi'ð Strathclyde háskóla í Glasgow. Sérsvið hans er bygging og uppsetning sjóeldisstöðva og hefur hann verið ráðgefandi við uppsetningu tveggja slíkra stöðva á Bretlandseyjum. Hinar ýmsu þjóðir heims eru nú mjög farnar að gefa gaum að hinum öru fram- fárum Japana á sviði fiskeldis og fiskiræktar, enda þykir það ekki lítið að tæp 7% af heildar- fiskframleiðslu Japana skuli vera ræktunar- og eldisfiskur. Athyglisvert er live mikill fjöldi manna vinnur við uppbyggingu og tilraunir á fiskeldi í Japan, enda er það nauðsynlegt, ef skjótur árangur á að nást. Ingimar Jóhannsson. Fiskiræktarmenn á Vesturlöndum hafa tek- ið eftir hinum öru framförum Japana á þessu sviði, en af því að mest af því sem skrifað hef- ur verið um fiskirækt í Japan hefur aðeins verið birt á japönsku, er það flestum ekki að- gengilegt. Forysta Japana í fiski- og skelfiskarækt hefur lengi verið viðurkennd. Árið 1971 reynd- ist framleiðsla fiskiræktarinnar 608.000 lest- ir, eða 6.7% af öllum veiðum Japana sem eru um 9.130.000 lestir. Samanborið við 94.000 lestir á árinu 1951 og 340.000 lestir á árinu 1961, sést þróun um 20 ára skeið mjög greini- lega. Þang, bæði „Nori“ og „Wakame“ er um helmingur framleiðslu fiskiræktarinnar (um 310.000 lestir), og fisk- og skelfiskafurðir um 300.000 lestir. Telja má víst, að ostrurækt gefi af sér um 20.000 lestir. Aðrar tegundir, sem ræktaðar eru aðallega gulsporður (Seriola quinqueradiata) ásamt „Kuruma“ rækju, „sea bream“ fiskur, „abalone“ skeljum og smokk- fiskum. Sem betur fer, hafa japanskir fiskiræktar- menn notið stuðnings hins opinbera og í nokkra áratugi hefur verið varið miklum fjár- munum til fiskiræktar, sem hinir 29.000 fiski- ræktarmenn hafa notið góðs af. Fiskiræktar- mönnum er veitt framkvæmdarleiðbeining, fjárstyrkur til eflingar starfseminni, vitneskja um nýja tækni ásamt hjálp við umsjón með sjúkdómum. Aðstoð þessi er veitt fiskiræktarmönnum af 79 höfuð- og 76 útibúrannsóknarstofnun- um í öllum hlutum landsins. Um 1500 menn mynda starfslið þessara stofnana, og eru í hópi þeirra líffræðingar, efnafræðingar og tæknifræðingar. Það má geta þess, að fiskeldi er kennslu- grein við tvo háskóla í Japan þar sem 1890 nemendur eru við nám í fiskirækt. Þá eru einn- ig iðnskólar, sem hafa fiskeldi að kennslu- grein. Eflaust hefur fiskiræktin þróazt vegna að- stoðar hins opinbera. Mynd 1. Kort af Japan, þar sem merktar eru inn á helztu fiskiræktarstöðvar, sem nefndar eru í greininni.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.