Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 19

Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 19
erlendar fréítir Svo til eingöngu stórsíld Norðmenn veiddu fyrstu stórsíld vetrarins við Ráey úti af Viknaströndinni. Það var til- raunabátur, sem veiddi þessa síld í reknet þann 1. febrúar. Aflinn var 30—40 hl. Síldar- rannsóknarmennirnir við Norsku hafrann- sóknarstofnunina segja, að hér hafi nær ein- vörðungu verið um síld af atlanto-skandinav- iska stofninum að ræða og um 100% af árgang- inum 1969. Það voru aðeins nokkrar síldar í Prufunum, sem ekki voru af þeim árgangi. Þetta var stórsíld af suðlægari vaxtargerð- inni og meðallengdin var 33,5 cm. Aðeins 5% af þeirri síld, sem veiddist, var tekin til rann- sóknar. Þessi síld var að koma inn til fyrstu hrygningar (stadium 5) - eftir gamalli reynslu þá hrygnir síld, sem er á 5. stigi i byrjun febrúar, í endaðan þann mánuð. Þar sem þetta var aðeins rannsókn á afla úr einni lögn, geta þessar niðurstöður breytzt eitthvað við víð- tækari rannsóknir. Þó að áliðið væri, þá var enn fita í bolnum, sem bendir til að síldin hafi hafzt við á góðum ætisslóðum. Það verð- ur að segjast, að síldin er nokkuð seint á ferð til hrygningar miðað við hversu stór hún er, en það ætlum við að merki, að hún hafi alizt upp við önnur skilyrði en þau, sem vetrarsíld við ísland bjó við fyrrum. Tilraunabáturinn má veiða 1000 hl. af síld. Samskonar veiðirannsóknir báru lítinn árang- Un í hitteðfyrra en í fyrra voru þær mjög vel- heppnaðar og báru vott um að síldarstofninn væri að endurnýja sig. Þá reiknuðu síldar- fræðingarnir með að um 90% af stofninum yæri síld af árg. 1969, það er síld, sem kæmi 1 fyrsta skipti inn til hrygningar í fyrra. Seiðarannsóknir í apríl staðfestu þessa skoð- un. Norðmenn ætla að reyna að kortleggja niagnið og gera sér betri grein fyrir ástandi stofnsins nú. G. O. Sars fann síld norður af Torsvær í desember. Rússamir hafa verið við sildarrannsóknir líka úti af Vikna-ströndinni. Norðmenn rannsaka, hve margt sé sérfróðra manna í fiskveiðunmn Við Norska fiskveiðilýðháskólann, sem starfar við háskólann í Tromsö, er verið að rannsaka, hvað sé mikið af sérfróðum mönn- um starfandi við fiskveiðar og annað, sem að þeim lýtur. Hér er um að ræða allskonar tækni- menn og verkfræðinga, lögfræðinga og hag- fræðinga og aðra háskólamenntaða menn. Ætl- unin er að afla upplýsinga, sem gætu komið að haldi við að leggja grundvöll að kennsl- unni og kennslukerfinu í fiskveiðunum, og gera sér grein fyrir á hvaða fög eigi helzt að leggja áherzlu og hversu marga stúdenta vanti. Rannsóknin leiðir í ljós, hvernig ástandið er í þessum efnum og hvers eðlis starf hinna sérfróðu manna sé. Fyrirtæki og stofnanir eru krafin um upplýsingar um hversu margt starfsfólk það hafi af ofannefndum menntun- argráðum og hvað þau telja að þörfin verði á árunum 1975—1980. Þessir starfsmenn, sem fyrir eru, verða svo spurðir að því, hvernig þeir álíti af sinni reynslu að haga beri kennsl- unni og menntuninni, svo að hún komi að sem beztu gagni innan hvers starfssviðs um sig. Rannsóknin nær til allra greina fiskveið- anna og hliðargreina þeirra, svo sem fiskifé- laga, fisksölusamlaga, útvegsmanna, skipa- smiða, veiðarfæragerða- og tækjasala, verk- stæða, útflytjenda, kennslu- og rannsóknar- stofnana, ráðunauta og opinberra stjórnunar- manna. Samfara þessum spurningaformum, sem send verða út til 2700 aðila, er ráðgert aö heimsækja valin fyrirtæki og stofnanir, sem verða þá einskonar þverskurðarmynd af heild- arástandinu en jafnframt er þar höfð hlið- sjón af að kynna sér svæðisbundnar þarfir. ÆGIR — 115

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.