Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 9

Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 9
A síðasta áratug hefur áherzla verið lögð á að stofna fiskiræktarstöðvar, en aðeins eftir að fullkornnar rannsóknir hafa verið gerðar á svæðinu. Aður fyrr höfðu verið byggðar fiskiræktar- stöðvar, án undangenginna rannsókna á svæð- inu. Þetta varð til þess að stöðvar þessar voru reistar á miður góðum stöðum, sem síðar varð að leggja niður, en höfðu þó kostað ærið (Sjá mynd af einni slíkri stöð). Hér fer á eftir stutt yfirlit um helztu teg- undir og aðferðir sem notaðar eru við fiski- raekt í Japan. Ostrurækt. Framleiðsla ostruræktarinnar er mest, næst á eftir þanginu. Um 200.000 lestir eru fram- leiddar til matar árlega. Helztu aðferðir við ostrurækt í Japan eru hinar svokölluðu fleka-, grindar-, og langlínuaðferðir, og svo að sá ostrunum á sjávarbotn. Fleka- og grindar- aðferðirnar eru notaðar í Suður-Japan, en langlínuaðferðir eru algengari á norðurströnd Japans. Minna er nú orðið um það en áður að sá ostru á sjávarbotn, og stafar það aðallega af mengun, þ. e. a. s. óhreinindi falla niður á botninn og skemma lífsskilyrði ostrunnar þar. Af 3686 hekturum sem ræktaðir eru, er sáð aðeins á 225 hektara. Flekarnir eru mest not- aðir og er slík rækt á 2363 hekturum. Miðpunktur ostruræktarinnar er Setosund (Seto Inland Sea). Af 2299 hekturum eru 2042 notaðir til flekaræktarinnar þar. Þetta svæði, einkanlega nálægt Hiroshima, er hent- K, iWÍi'iV'iTi A. Mynd 2. Yfirgefin fiskiræktarstöð við Seto- sund. Á myndinni sést að girðingunni hefur verið skipt í smærri einingar, en það varð til þess að gegnumstreymi og endurnýjun var ekki nógu mikil, þannig að fiskeldið gekk ekki vel. ugt ostruræktinni vegna þess, að munurinn á flóði og fjöru er aðeins 80 cm. Skeljasöfn- unarútbúnaður festur á víra, er notaður til að safna hrognunum í strokka. Þegar klakið er komið í strokkana, er því dreift aftur á flek- ana þar sem ungviðið vex og nær söluhæfri stærð. Flekarnir, sem notaðir eru til ostru- ræktar í Setosundi, eru um 16 m á lengd og 8 m á breidd, og rúma 500—600 strokka. Flek- ar þessir eru tiltölulega einfaldir í smíðum, og gerðir úr bambusstöngum, sem eru 10—15 cm í þvermál og bundnar saman, þannig að þær mynda ferhyrndan ramma, sem flýtur á flotholtum úr bikuðum viði. Á opnari svæðum, þar sem munurinn á flóði og fjöru er meiri, er línuaðferðin frekar notuð, vegna þess að hún verður að minna leyti en hinar aðferðirnar fyrir áhrifum af vindi, bylgjum og straumum. Þessi aðferð hefur verið notuð á 429 hekt- ara svæði. Um leið og mengun á skjólgóðum svæðum verður áberandi, mun þessi aðferð leiða til þess, að japanskir ostruræktarmenn sækja lengra út á haf. Gulsporður. í Japan nýtur gulsporður mestrar almenn- ingshylli sem ræktunarfiskur. Frá framleiðslu á 2620 lestum árið 1961 hefur eldi þessarar fiskitegundar eflst það mikið, að 52.000 lest- ir voru seldar árið 1971. Þróun þessi er til komin vegna uppörvunar og fjárhagsaðstoðar stjórnvalda. Gulsporðaeldi er einkanlega smá- um fyrirtækjum hentug, enda stunda um 1500 fyrirtæki gulsporðaeldi. Þrenns konar eldistækni er notuð: 1. Tjarnir, sem byggðar eru með upphlöðn- um bökkum og flóðgáttum til að hafa hringrás á vatninu. 2. Netjagirðingar í hafinu. 3. Fljótandi netjabúr, sem notuð eru á skjól- góðum fjörðum. Tjarnir. Á árunum í kringum 1928 voru byggðar tjamir með flóðgáttum hjá Adoike við Seto- sund. Nú á tímum er ekki talið hagkvæmt að búa til slíkar tjarnir, og kemur þar margt til, en aðalþröskuldurinn er, að erfitt er að fá Æ GIR — 105

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.