Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 17

Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 17
Spjall um Lófótveiðarnar Fyrri hluta febrúar ár hvert safnast 5—6 þúsund íiskimenn saman í Lófót. Þessir fiskimenn koma frá allri ströndinni allt frá Vestui -Ögðum til Finnmerkur. Þoxskurinn, sem þeir ætla að veiða, kemur af uppeldisslóðunum í Barentshafi, og við Bjamarey og Svalbarða. Göngurnar fara fram- hjá yztu Lófoteyjunum og Skomvær og síga inn á hrygningarsvæðin í Vesturfirði og alveg inn til Lödningen. Fiskifræðingar reikna með, að um það bil helmingur þessara fiskgangna verði veiddur áður en vertíð lýkur eða fram í endaðan apríl, að fiskurinn gengur aftur til baka af hrygn- ingaslóðunum og norður og austur. Það er búizt við lélegum afla við Lófót í ár, en undanfarin þrjú ár hafa aflabrögðin verið mjög góð. Þorskaflinn við Lófót var næstum 60 þús. tonn í fyrra og árið þar áður um 98 þús. tonn. Um miðjan áratuginn síðasta var aflamagnið allt niður í 20 þús. tonn og niargir óttast að það verði eitthvað um það bil nú á þessari vertíð. Þessi ótti er ekki ástæðulaus, því að fiskifræðingar álíta, að það hafi gengið helmingi minna fiskmagn á hrygningarslóðirnar við Lófót nú en í fyrra. Ef þessi verður raunin á, getur ekkert bjargað fiskimönnunum nema geysihátt verð. Lág- marksverðið hefur hækkað um 60% frá því á vertíðinni í fyrra. Markaðsútlitið er gott, og það er engin ástæða til að búast við neinum vandkvæðum á að losna við saltfiskinn og skreiðina. Góður árgangur. Hinir fræðilegu útreikningar fiskifræðing- anna og hin nýja og mikla hjálpartækni hef- ur gert mönnum kleift að reikna út stærð hvers þorsksárgangs. Fiskifræðingurinn Arvid Hylen hefur sagt, að árgangurinn 1963 — það er elzti árgangurinn, sem hefur áhrif á veiðarnar þetta ár — hafi verið 2000 milljónir fiska að tölu, þegar árgangurinn var 3ja ára. En þó að þetta hafi verið stór árgangur, þá er nú varla mikið eftir af honum. Árgangarnir 1965—67, sem hefðu átt að vera burðarásarnir í hrygningastofninum nú, voru allir mjög veikir. Þegar þessir árgangar voru hver um sig 3ja ára, þá taldi hver þeirra ekki nema um 200 milljónir fiska eða minna, en það er ekki nema einn tíundi af árgangin- um 1963, eins og áður er sagt frá. Á vertíðinni 1972 voru þessir árgangar komnir niður í 24 milljónir (árg. 1965), 37 milljónir (árg. 1966) og 82 milljónir (árg 1967). Um nýrri talningu er ekki enn að ræða, en gera má fastlega ráð fyrir að tveggja ára hörkusókn (1972 og ’73) hafi höggvið allverulegt skarð í þessa árganga frá þessari síðustu talningu. Fiskifræðingarnir gera ráð fyrir að þorsk- stofninn nú sé ekki nema 2,5% af því, sem hann var í endaðan fimmta áratuginn. En þá hafði öflugur árgangur frá 1937 fengið að lifa í friði fyrir togurum öll fimm stríðsárin á uppvaxtarslóðunum. 3 mögnr ár, en þá fer að glæðast afli á ný. Sveiflurnar í stærð árganga hafa áhrif á Lófót veiðarnar 7—10 árum síðar. Talið er, að árgangurinn 1970 hafi orðið mjög stór, og í fyrra var reiknað út, að hann myndi vera um 1700 milljónir fiska talsins. Hann kemur til að hrygna við Lófót á vertíðinni 1977 í fyrsta skipti. Ef togararnir veiða ekki um of af ungfisk- inum á uppeldisslóðunum ætti vertíðaraflinn við Lófót að aukast að þremur—fjórum ár- um liðnum. Áhyggjuefnið nú er, að hrygningastofn veiku árganganna verður jafnan mjög lítill. Arne Hylen segir að fram til 1975 sé gild ástæða til að óttast að hrygningastofninn verði svo lítill að ekki verði um nægjanlega endumýjun að ræða. Hann álítur einnig, að svo geti farið, að fiskifræðingarnir neyðist til að ráðleggja að veiðar verði takmarkaðar ÆGIR — 113

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.