Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 15
Gunnar Jónsson, fiskifræðingur;
Sjaldséðir fiskar
árið 1973
Eftirfarandi sjaldséðir fiskar bárust Haf-
rannsóknastofnuninni til rannsókna árið 1973:
I- ÍSLANDSMIÐ
1- Gíslaháfur Apristurus laurussonii (Sæ-
mundsson).
13. mars, Grindavíkurdjúp (63^05'N-
22°26'V), 750 m dýpi, lengd 66 cm, bv, r/s
Bjarni Sæmundsson.
2. Þorsteinsháfur Centroscymnus crepidater
(Bocage & Capello). Sami staður og tími og
gíslaháfur hér að ofan. Lengd 61 cm.
3- Náskata Raja fullonica L.
23. nóv., SV af Selvogsbankatánni (62°55'N
22°33'V), dýpi 958—1032 m, lengd 75 cm
bv, r/s Bjami Sæmundsson.
4. Pólskata Raja fyllae Lútken.
Sami staður og tími og náskatan hér að
ofan. Lengd 46 cm.
5. Maríuskata Bathyraja spinicauda (Jensen).
Sami staður og tími og náskatan og pólskat-
an hér að ofan. Lengd 134 cm.
6. Geirsíli Paralepsis sp.
a) janúar, undan Austfjörðum (65°54'N—
11°12'V), lengd 27 cm, r/s Árni Frið-
riksson;
b) 28. maí, undan Austfjörðum (64019'N—
ll042'V), 4 stk. mikið skemmd.
7. Pokakjaftur Saccopharynx sp.
10.-15. júní, Víkuráll, vestanverður, dýpi
256-311 m, lengd 165 cm, bv, Vestmanna-
ey VE.
Þetta er í fyrsta skipti, sem fiskur af
þessari ættkvísl veiðist á íslandsmiðum.
E. t. v. er hér um alveg nýja tegund fyrir
vísindin að ræða. Alls munu þekkjast fjór-
ar tegundir þessarar ættkvíslar og hafa
þrjár þeirra fundist í Atlantshafi, en sú
fjórða aðeins í Indlands- og Kyrrahafi.
Fiskur sá, sem veiddist í Víkurál, virðist
líkjast mest tegundinni S. flagellum.
8. Djúpáll Synaphobranchus kaupi Johnston.
23. nóv., SV af Selvogsbankatánni (sama
stað og nr. 3 hér að framan), lengd 31 cm.
Mynd 2. Djúpáll (Fish. Res. Board of Canada,
Bull. No. 155).
Skv. erlendum heimildum hefur fiskur
þessi fundist áður hér við land. Annars eru
heimkynni hans á 250-3600 m dýpi eftir
landgrunnshallanum frá Madeira og Asór-
eyjum norður á bóginn til Færeyja og suð-
urstrandar Islands. Þá er hann einnig að
finna í vestanverðu N-Atlantshafi frá
Stórabanka til S-Karólínu. Loks mun hann
vera í S-Atlantshafi og Kyrrahafi. Nær
allt að 66 cm lengd.
ÆGIR — 111