Ægir - 01.04.1974, Side 20
Á TÆKJAMARKAÐNUM
Vökvadrifin
færavinda
í lýsingu af Viðari ÞH 17
(sjá Ný fiskiskip í þessu tbl.)
kemur fram að báturinn er bú-
inn 7 vökvaknúnum færavind-
um. Vindugerð þessi, sem kall-
ast Vaga Snellan eða Oilwind,
er framleidd af J. K. Joensen
And Son, Midvaag í Færeyj-
um.
Rétt þykir að kynna þessa
færavindu lítillega, þar sem
vindur af þessari gerð eru
fyrst núna að koma í báta hér
á landi.
S.l. sumar voru settar niður
7 „Oilwind" færavindur í ms.
Hlíf SI 24, 47 rúmlesta stál-
fiskiskip, og voru það fyrstu
vindurnar af þessari gerð, sem
settar eru í íslenzkt fiskiskip.
Fyrir utan Hlíf SI hefur vindu-
gerð þessi verið sett í tvo aðra
báta (nýsmíði), þ. e. Viðar ÞH
og Haförn EA 155, sem skipa-
smíðastöð KEA afhenti seint
á s.l. ári (Lýsing af Haferni
EA birtist í næsta tbl.).
Á meðfylgjandi mynd má
sjá teikningu af þessari vindu.
Sjálf vindan (rúllan) er venju-
leg færavinda með armbremsu,
sem fyrirtækið hefur framleitt
um árabil, en við rúlluna hefur
verið sett drifkerfi, sem eins
og áður er getið er vökvaknú-
ið. Olíumótorinn er frá Dan-
foss, gerð OMP-50. Vinnu-
þrýstingur fyrir mótorinn er
gefinn upp að vera 40 kg/cm-
og olíustreymi 5 l/'mín. Átak
vindu er 23 kg og dráttarhraði
um 70 m/mín og er þá miðað
við ofangreindan þrýsting og
olíustreymi. Olíustreymi og
þar með dráttarhraði er stillt
með sérstökum loka og einnig
er stillanleg kúpling (sluðr-
ari), sem gefur átaksstillingu.
Vindan er ekki sjálfskakandi,
en skv. upplýsingum frá um-
boðsmanni framleiðanda er
verið að vinna að tæki, sem á
að gera það kleift, og verður
það viðbótartæki við þessa
vindugerð.
Fyrir utan sjálfar vindurn-
ar afhendir framleiðandi einn-
ig tilheyrandi fylgihluti í sam-
bandi við rörakerfi svo og
dælu. Ef miðað er við 8 vind-
ur er aflþörf dælu ca. 4 hö. og
er þá miðað við, að allar vind-
ur vinni með fullum afköstum.
í Haferni EA og Viðari ÞH er
umrædd dæla drifin af hjálp-
arvél, en í Hlíf SI er notuð
dæla, sem er fyrir vindukerfi
skipsins og er drifin af aðal-
vél.
Umboð fyrir þessar fær-
eysku færavindur hefur Mar-
inó Pétursson, heildverzlun,
Reykjavík. Skv. upplýsingum
frá umboðinu hefur verð á
vindum þessum verið um
50.000,00 eða um 400.000,00
ísl. kr. miðað við 8 vindur og
er þá innifalið rörakerfi og
dæla.