Ægir - 01.04.1974, Qupperneq 21
NÝ FISKISKIP
I þessu blaði birtist lýsing af
wis. Hólmanes SU 1, fyrsta skut-
togaranum af minni gerð, sem
Spánverjar smíða fyrir íslend-
inga, og einnig birtist hér lýsing
af 19 rúmlesta tréfiskiskipi, ms.
Viðari ÞH 17, sem er nýsmíði nr.
1 hjá Básum h.f. Vestmanna-
eyjum. Ægir óskar eigendum til
hamingju með skipin og áhöfn og
fleyjum farsældar.
Hólmanes SU 1
7. febrúar s.l. kom skuttog-
arinn Hólmanes SU 1 til
heimahafnar sinnar, Eski-
fjarðar, í fyrsta sinn. Hólma-
nes SU er sá 1. í röðinni af 5
skuttogurum af minni gerð
(undir 500 brl.) sem smíðaðir
eru á Spáni fyrir íslendinga.
Þessir skuttogarar eru allir
smíðaðir eftir sömu teikningu,
en alls eru það fjórar skipa-
smíðastöðvar, sem smíða ofan-
greind skip. Hólmanes er smíð-
að hjá skipasmíðastöðinni
Construcciones Navales P.
Freire S. A. Vigo og er smíða-
númer 80 hjá stöðinni. Skipið
er í eigu Hólma h. f., Eskifirði,
en aðalhluthafar fyrirtækisins
eru Hraðfrystihús Eskifjarð-
ar h.f. og Kaupfélag Héraðs-
húa, Reyðarfirði.
Almenn lýsing:
Skipið, sem er skuttogari
með tveimur þilförum milli
stafna og skutrennu upp á efra
þilfar, er byggt skv. reglum
f-^oyd’s Register of Shipping
°g flokkað +100A1, Stern
Trawler, ICE Class 2, +LMC.
Undir neðra þilfari er skip-
inu skipt með 6 vatnsþéttum
þilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: stafnhylki fyrir
brennsluolíu; hágeymir fyrir
brennsluolíu, en í rúmi þessu
er einnig innbyggður keðju-
kassi; asdikklefi; fiskilest, en
undir lest eru botngeymar fyr-
ir brennsluolíu; vélarúm með
botngeymum út við síður fyrir
ferskvatn; brennsluolíugeymir
(tvískiptur) yfir stefnishylki
og skutgeymir (þrískiptur)
aftast fyrir brennsluolíu.
Fremst á neðra þilfari er
geymsla, en þar fyrir aftan
íbúðir. Aftan við íbúðir er
vinnuþilfar, fiskmóttaka og
stýrisvélarrúm. Stjómborðs-
megin við fiskmóttöku og stýr-
isvélarrúm er vélarreisn og
netageymsla aftast, en bak-
borðsmegin er vélarreisn og
verkstæði aftast.
Á efra þilfari er fremst lok-
aður hvalbakur, en þar er
netageymsla. Aftan við hval-
bak er þilfarshús, sem gengur
fram í hvalbak að hluta. í
þilfarshúsi eru íbúðir. Aftan
við þilfarshús er togþilfarið.
Hvalbaksþilfar nær að aft-
urgafli þilfarshúss, en aftast
á því er brú (stýrishús) skips-
ins staðsett.
Vélabúnaður:
Aðalvél er MAN (Bazan-
Man), gerð G8V 30/45 ATL,
1700 hö. við 500 sn/mín., sem
tengist gegnum kúpplingu gír
frá Tacke-Olalde, gerð HSU-
560 með niðurfærslu2,5:lfyrir
skrúfubúnað. Skrúfubúnaður
er frá Navalips, skrúfa 4ra
blaða skiptiskrúfa með 2500
mm þvermáli.
Á niðurfærslugír eru tvö
aflúttök (1:3). Á öðru aflút-
takinu er fasttengdur jafn-
straumsrafall (fyrir tog-
vindumótor) frá Indar, 310
KW, 440 V, 1500 sn/mín. Á
hinu úttakinu, sem gert er
fyrir 260 hö. við 1500 sn/
mín., er deiligír (1:1) með tvö
aflúttök. Við þessi úttök eru
tengdar tvær háþrýstidælur
(fyrir hjálparvindur).
Hjálparvélar eru tvær frá
Caterpillar, gerð D 343 TA,
stilltar fyrir 275 hö. við 1500
Rúmlestatala ....................... 451 brl.
Mesta lengd ..................... 47.55 m.
Lengd milli lóðlína ............. 39.26 m.
Breidd ........................... 9.50 m.
Dýpt að efra þilfari.............. 6.50 m.
Dýpt að neðra þilfari ............ 4.30 m.
Djúprista (mesta) ................ 4.25 m.
Særými (djúprista 4.25 m.) .... 1060 t.
Burðarmagn (djúprista 4.25 m) 400 t.
Lestarrými ........................ 400 m3.
Brennsluolíugeymar................. 168 m3.
Ferskvatnsgeymar ................... 37 m3.
Ganghraði (reynslusigling) ........ 14.0 hn.
Æ G í R — 117