Ægir - 01.04.1974, Qupperneq 22
sn/mín. Hvor vél knýr rið-
straumsraíal frá Indar, 210
ICVA (168 KW) 3x380 V,
50 Hz.
Tvær De Laval skilvindur
eru fyrir smurolíu- og
brennsluolíukerfið. Loftræsi-
kerfið fær loft frá tveimur raf-
knúnum loftþjöppum frá ABC,
gerð VA-70, afköst 40 m3/
klst., þrýstingur 30 kg/cm2.
Tveir þrýstiloftskútar, 200 1.
að stærð, eru fyrir þrýstilofts-
kerfi. Tveir rafdrifnir blásar-
ar eru fyrir vélarúm og loft-
notkun véla.
Hydroforkerfi, bæði sjó- og
ferskvatns-, er frá Itur, stærð
geyma um 300 1., dæluafköst
2600 1/klst. Einn 250 1. geym-
ir er til upphitunar á fersk-
vatni með 10 KW rafmagns-
elementi. Pælikerfi er fyrir
tvo brennsluolíugeyma, stafn-
hylki og hágeymi, með fjaraf-
lestri í vélarúmi.
í stýrisvélarrúmi undir
skutrennu er rafstýrð vökva-
knúin stýrisvél frá Tenfjord,
gerð Hu-160-2ESG-450.
Vindubánaður:
Togvinda skipsins er stað-
sett aftan við þilfarshús á efra
þilfari. Vindan er frá Carral,
gerð MCM-5 með tveimur tog-
tromlum, þremur hjálpar-
tromlum og spilkoppum á end-
um. Togtromlur hafa eftirfar-
andi mál: 465 mm** x 1450
mnF x 1550 mm og gefnar upp
fyrir 1450 faðma af 3ý2" vír,
hvor tromla. Togátak vindu
er 14,1 t. á miðja tromlu
(960 mmf*) og tilsvarandi víra-
hraði 112 m/mín. Vindan er
knúin af jafnstraumsmótor
frá Indar, 390 hö„ 440 V, 1000
sn/mín.
Eins og fyrr segir eru þrjár
hjálpartromlur á togvindum.
Ein tromla er á miðri vindu
fyrir hífingar á vörpunni upp
á þilfar, en hinar tvær eru
hvor á sínum enda og eru fyrir
grandaravírana.
Fremst í göngum, til hliðar
við þilfarshús, s.b,- og b.b.-
megin, eru tvær hjálparvindur
frá Ibercisa, gerð ASC-3B.
Vindur þessar eru vökvaknún-
ar (háþrýstikerfi) með einni
tromlu og eru notaðar við að
draga bobbingana fram.
Aftarlega á togþilfari, hvor
sínum megin við vörpurennu,
eru tvær hjálparvindur, sem
notaðar eru m. a. við að losa
pokann, og þegar vörpunni er
kastað. Vindur þessar eru
vökvaknúnar (háþrýstikerfi)
með einni tromlu og einum
spilkoppi. Önnur vindan er frá
Ibercisa, en hin frá Indupesca.
Dælur fyrir ofangreindar
háþrýstivindur eru drifnar af
aðalvél (aflúttak á aðalvélar-
gír) og er kúplingu fyrir þær
stjórnað frá vélarrúmi. Dælur
þessar eru tvær, tvöfaldar af
gerðinni Vickers 3520 V 35
A14. Til vara fyrir háþrýsti-
vindukerfi er ein einföld raf-
knúin dæla.
Akkerisvinda er rafknúin,
frá Carral, og staðsett á hval-
baksþilfari.
Aftast í stýrishúsi skipsins
eru stjórntæki fyrir vindur.
Fjarstýring er á togvindu
(þar með talið hífingar-
tromlu og grandaratroml-
um) og einnig er ráð-
gert að setja fjarstýringu á
hjálparvindur þær, sem stað-
settar eru aftarlega á togþil-
fari. í stýrishúsi eru togmæl-
ar, þannig að lesa má átak á
togvírum.
Vinnuþilfar:
Fiskilúga á efra þilfari opn-
ast upp og er vökvaknúin.
Fiskmóttöku á neðra þilfari
er skipt með uppstillingu í 3
hólf og er stærð móttökunnar
um 28 m3. Framan við fisk-
móttöku eru aðgerðarborð og
affallsrennur (fyrir borð)
fyrir slóg og annan úrgang.
Eftir aðgerð fer fiskurinn
eftir færiböndum að fisk-
þvottavélum. Tvær fiskþvotta-
vélar eru í skipinu, önnur „rot-
erandi" en hin kerþvottavél.
Frá þvottavélum fer fiskurinn
eftir færibandi að lestrarlúgu
og síðan niður í lest.
Tvær austursdælur eru fyrir
vinnuþilfar, afköst dælu um
30 m3/klst.
Loft á vinnuþilfari er ein-
angrað með glerull og klætt
með krossviði. Vélræn loft-
ræsting er ekki fyrir vinnu-
þilfar.
Fiskilest:
Fiskilestin er um 400
m3 að stærð. Uppstilling er
fremst í fiskilest, stálstoðir
með stíu- og hilluborðum úr
áli, en í afturhluta er lestin
útbúin fyrir kassa.
Á lest eru þrjár losunar-
lúgur, aðgangur að fremstu
lúgunni er frá hvalbaksþilfari
framan við brú, en að hinum
tveimur er aðgangur frá tog-
þilfari aftan við togvindur.
Tvö færibönd eru í lest til
flutnings á fiski.
Lestin er einangruð með
polyurethan og klætt með 4ra
mm stálplötum, þó þykkri
plötur í lestargólfi.
Lestin er kæld og eru kæli-
leiðslur í lofti lestar. Tvær
kæliþjöppur, staðsettar í vél-
arrúmi, frá Sabroe, gerð PKO-
14, eru fyrir lestarkælingu. Af-
köst 9500 kcal/klst. (-10/15/
25°C) hvor þjappa, kælimiðill
Freon 12.
Æ GI R — 118