Ægir - 15.02.1976, Síða 10
Ásgeir Jakobsson:
NORÐM ANN AÞÁTTUR
ÍJr sögu hvalveiðanna, framh.
Þá er komið að þeim þættinum, sem veiga-
mestur er í hvalveiðum við Island, en það
er hvalveiðar Norðmanna frá bækistöðvum
í landi á árunum 1883—1915. Um þær er til
góð heimild í stórum dráttum, þar sem er
kaflinn um íslandsveiðar Norðmanna í hval-
veiðisögu Sigurd Risting, sem út kom á for-
lagi Cappelens 1922 og heimildarmaður hans
er meðal annarra enginn annar en aðalsögu-
hetjan, Hans Ellefsen. í sagnasafninu „Frá
yztu nesjum“ I. b. hefur Gils Guðmundsson
tekið saman ýtarlega frásögn eftir skilgóðum
mönnum, af veiðum og stöðvum á Vestfjörð-
um og Magnús Gíslason skrifaði bók, „Á hval-
veiðistöðvum". sem kom út 1949 og segir þar
frá Framnesstöðinni vestra og Asknesstöð-
inni eystra. Jóhann Hjaltason og Kristján G.
Þorvaldsson fjalla einnig um Vestf jarðaveið-
arnar í Árbók Ferðafél. íslands 1949 og 1951.
í ævisögu sinni „Á sjó og landi“, segir Ás-
mundur Helgason frá Austfjarðaveiðunum, en
hann var einmitt oddviti í þeim hreppi, sem
Svínaskálsstekksstöðin var í og þekkti hennar
sögu gerla og reyndar allar veiðar Norðmanna
eystra. Halldór Stefánsson hefur svo ritað ýt-
arlega um veiðar Norðmanna eystra í Aust-
firzk fræði. Enn eru svo á lífi menn, sem
muna sitthvað til veiðanna og stöðvanna og
í landhagsskýrslum er að finna allgóBar heim-
ildir um útflutning hvalafurðanna á þessum
árum, þó að þær séu dálítið varasamar sögu-
legar heimildir á köflum.
Það vantar ekki heimildir fyrir þessari
merku útgerðarsögu en hins vegar heillega
samantekt. Nú er það meining mín að tína
saman úr þessum heimildum öllum og nokkr-
44 — Æ GIR
um fleiri, sem getið verður í leiðinni, þátt af
norsku hvalveiðistöðvunum og útgerðinni og
veiðunum.
Langeyrarstöðin — Svend Foyn og
Thomas Amlie.
Eins og frá hefur verið sagt í sambandi við
heimsveiðarnar fann Norðmaðurinn Svend
Foyn upp nothæfan sprengiskutul 1864 og
það var einmitt þessi frægi maður, sem hóf
fyrstur hvalveiðar Norðmanna frá bækistöð
á íslandi ásamt þeim Amliebræðrum og MonS
Larsen, útgerðarmanni í Haugasundi, en þess-
ir allir mynduðu með sér félag til hvalveiða
á íslandi og var það vorið 1883 að þeir settn
sig niður á Langeyri við Álftafjörð vestra-
Og voru tæki, hvalbátur og útbúnaður annar
fluttur frá stöð Foyns í Vadö. Aðdragand-
inn mun þó hafa verið nokkru lengri en al'
mennt kemur fram í frásögnum af stofnun
þessarar fyrstu hvalveiðistöðvar Norðmanna
hér. Jóhann Hjaltason segir lítið eitt frá þess-
um aðdraganda í Árbók Ferðafélags íslands
1949:
„Vorið 1881 komu Norðmenn í Álftafjörð
til athugunar á staðháttum undir hvalveiði-
stöð og byggðu þá þegar smáskúr til lýsiS'
bræðslu. En vorið 1882 hófust aðalfratn-
kvæmdirnar við bryggjugerð og húsbygging'
ar. Hvalstöðin var hlutafélagið „Mons Lar-
sens Compani". Einn af hluthöfunum og sá
sem fyrstur athugaði staðhætti var Svend
Foyn.“ I frásögn Jóhanns af framkvæmdum
Norðmanna er einnig að finna dæmi um það>
hversu mjög þeir vönduðu til margra sinna
J