Ægir - 15.02.1976, Side 14
gagna var það ákveðið að gefa þeirri nefnd
það ráð, að stöðva allar síldveiðar í Norður-
sjó á árinu 1976. Þessi síldarstofn er nú í slíkri
lægð, að jafnvel tilfallandi síldveiði, það er
síldarafli, sem fengizt hefur af tilviljun, þeg-
ar skip væri á öðrum veiðum á þessum slóð-
um, gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með
sér í framtíðinni.
6. Annað mikilsvert verkefni Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins er vísindalegar rannsóknir
á mengun hafsvæða. Fyrir ári gaf ráðið
út þá umfangsmestu rannsóknarskýrslu, sem
nokkurn tímann hefur verið gefin út um þetta
efni og þar lagður grundvöllur, sem rann-
sóknir skyldu miðast við, mengun á stórum
hafsvæðum, svo sem Norðursjónum. ICES hef-
ur nú ákveðið að færa út þessar rannsóknir
til alls Norður-Atlantshafsins og það verk er
nú vel á veg komið. 1 þessu verkefni felast
mörg viðfangsefni, svo sem söfnun sýnishorna
og tæknilegar skilgreiningar og ekki sízt sam-
hæfing þeirra til að tryggja að hinar vara-
sömu og stundum mjög flóknu skilgreiningar
séu samanburðarhæfar hjá hinum ýmsu þjóð-
um og rannsóknastofum.
Sú grundvallarrannsókn, sem gerð var í
Norðursjónum sýndi, að enda þótt um meng-
un sé að ræða uppi við stendurnar og henni
verði að fylgjast vel með, þá var mengun í
fiski dýpra úti í Norðursjó mjög lítil miðað
við það mengunarmark, sem sumar þjóðir
telja hættumark og stundum reyndist magnið
svo lítið, að það var naumast tæknilega mæl-
anlegt.
7. Út frá þessum grundvallarrannsóknum í
Norðursjó hefur ICES skipulagt samræmt
og reglulegt rannsóknaprógram og ætlar að
láta fylgja því árlegar skýrslur. Fyrsta
skýrslan samkvæmt þessum árlegu rannsókn-
um var lögð fram á þinginu nú í Montreal og
var hún í samræmi við áðurnefnda frumrann-
sókn og hefur verið samþykkt af ICES og
verður send Oslómengunarnefndinni, sem
kom saman í Portúgal síðast í október.
8. Það var rædd margvísleg önnur starf-
semi ICES á þessu nýliðna þingi. Mjög mikil-
vægt umræðuefni var hafræktun. Þar var
skipzt á upplýsingum og menn miðluðu hver
öðrum reynslu og tóku þessar umræður tvo
hálfa daga í þinghaldinu. Á þessu sviði er
vaknaður mikill áhugi fyrir að rannsaka vís-
indaleg vandkvæði í þessu efni öllu og ICES
lagði drög að frekari þróun og framvindu
þeirra mála og að menn miðluðu áfram
reynslu hver til annars.
9. Það setti mjög athyglisverðan og mark-
verðan svip á þetta þinghald í Kanada, að
þingfulltrúar frá Kanada og Bandaríkjunum
tóku óvenjumikinn þátt í umræðum og lögðu
fram skýrslur og héldu mörg erindi eða lögðu
þau skriflega fram og umræður urðu altækari
og árangursríkari en oft hefur verið á þing-
um ICES. Virk þátttaka beggja vegna Atlants-
hafsins er áreiðanlega mjög mikilvægt skref
í þróunarsögu ICES.
Síðustu tvær klausurnar í þessum upplýs-
ingapappír ICES eru nafnarunur á rnönnum,
sem aðstoðuðu við þinghaldið og mönnum,
sem voru kosnir í hin ýmsu embætti til næstu
þriggja ára. Forseti til næstu þriggja ára var
kosinn prófessor G.V. Nikolsky frá Sovétríkj-
unum og fyrsti varaforseti B.B. Parrish frá
Bretlandi. Aðrir stjórnarmeðlimir eru frá
Bandaríkjunum, Vestur-Þýzkalandi, Dan-
mörku, Portúgal og Frakklandi. Aðalritari er
H. Tambs-Lyche. Aðalstöðvar ICES eru í
Charlottenlund í Kaupmannahöfn.
ÞEIR FISKA
SEM RÓA MEÐ VEIÐAFÆRIN FRÁ
SKAGFJÖRÐ
48 — Æ GI R