Ægir - 15.02.1976, Blaðsíða 16
Valdi tímabundnar friðunaraðgerðir eða
takmörkun á sókn fiskiflotans efnahags-
legu tjóni hjá veiðum eða vinnslu, sjái
stjórnvöld um, að slíkt tjón verði bætt af
þjóðinni allri.
Jafnframt verði þess gætt, að afkastageta
fiskiflota landsmanna verði á hverjum
tíma miðuð við að nýta að fullu afrakstur
fiskstofna við landið með eðlilegu úthaldi,
án þess að fyrirsjáanleg hætta verði á of-
veiði.
4. Fiskiþing lítur svo á, að með tilliti til nú-
verandi ástands í fiskveiðimálum, beri að
leggja ennþá meiri áherslu en hingað til á
fyllstu gæði alls fiskafla og þeirra út-
flutningsvöru, sem úr honum er unnin.
5. Með hliðsjón af nýjum viðhorfum um
stærð fiskstofna, telur Fiskiþing nauð-
synlegt að Fiskveiðilaganefnd endurskoði
frumvarp sitt og m. a. felli inn í lögin heim-
ild fyrir ríkisstjórn til ákvörðunar hámarks
ársafla einstakra botnfisktegunda.
Ennfremur verði, með tilliti til valdbeit-
ingar Breta við veiðar í fiskveiðilandhelg-
inni, aukin fast afmörkuð friðunarsvæði,
sem ef til vill yrðu fremur virt af þeim,
heldur en skyndilokanir vegna smáfisk-
gengdar.
6. Tillaga um breytingu á 3. gr. lagafrum-
varpsins:
Fiskiþing samþykkir að leggja til við Fisk-
veiðilaganefnd, að í stað nefndar sex aðila,
sem þar er gert ráð fyrir, verði verkefni
nefndarinnar skv. lögunum falin stjórn
Fiskifélags Islands og Hafrannsóknastofn-
un, með tilliti til þess að hinir fjórir aðil-
arnir eiga fulltrúa í stjórn FiskifélagsinS
ásamt fleiri hagsmunasamtökum.
7. Breytingartillaga við 4. grein frumvarps
til laga um veiðar í fiskveiðilandheigi ís-
lands:
Upphaf greinarinnar orðist svo:
Sjávarútvegsráðherra ákveður með
reglugerð lágmarksstærðir fisktegunda.
Skipstjórnarmönnum er skylt að til-
kynna eftirlitsskipi um magn smærri
fisks í afla umfram 5%, strax og hans
verður vart.
Skipstjórnarmönnum er skylt að hirða
og flytja að landi allan þann fiskafla,
er þeir drepa við veiðarnar og skila við
löndun sundurliðaðri skýrslu um teg-
undir, magn og veiðisvæði.
Fiski undir lágmarksstærð skal haldið
aðskildum frá öðrum afla í veiðiskipi,
og halda honum í umsjá ferskfiskmats
Framleiðslueftirlits sjávarafurða. And-
virði þess afla, sem umfram er 5% aí
heildarþunga, og smærri en lágmarks-
stærðir skal renna til Landhelgissjóðs.
Á sama hátt skal fara með allan afla,
sem ekki nær mati eftir gæðaflokkun
fiskmatsins o. s. frv.
4. grein 3. málsgrein, viðauki:
. .. skal skipherra ákveða áframhaldandi
lokun veiðisvæðis allt að sjö sólarhring-
um í senn. Við hverja slíka lokun .. •
o. s. frv.
FISKVERKENDUR
ÚTGERÐARMENN
ALLAR
TEGUNDIR
KLÓRTÆKJA fyrir
VINNSLUSTÖÐVAR,
FISKISKIP og BÁTA
EINNIG: KLÓRMÆLITÆKI,
KLÓRGASGRIMUR.
GASKLÓRTÆKI.
BÁTAKLÓRTÆKI
VATNSKLÓRTÆKI
MMÁRNIÓLAFSSON &CO.SÍMI 40088 ttt#
50 — ÆGIR