Ægir - 15.02.1976, Page 18
in ráðstöfunarfé Fiskveiðasjóðs hefur leitt
af sér aukna greiðslubyrði atvinnugreinar-
innar.
Fiskiþing mótmælir harðlega vaxtahækkun
af lánum Fiskveiðasjóðs og sérstaklega að
hún sé látin gilda aftur fyrir sig á þann
hátt sem stjórn sjóðsins hefur ákveðið.
Samanburður við aðra fjárfestingarsjóði
hefur leitt í ljós að lánakjör Fiskveiða-
sjóðs eru mun óhagstæðari en þeirra.
Fiskiþing leggur því áherzlu á að sjávarút-
vegurinn búi ekki við óhagstæðari lánakjör
en aðrir atvinnuvegir í landinu.
Afkoma sjávarútvegsins er nú með þeim
hætti að brýna nauðsyn ber til að endur-
skoða greiðslubyrði útvegsins og færa til
lækkunar.
2. Sé það vilji stjórnvalda að takmarka smíði
nýrra skipa telur Fiskiþing óeðlilegt að það
sé gert með óhagkvæmum lánakjörum eins
og hækkun vaxta, í stað þess sé gerð krafa
um hækkun eigin f jár kaupenda, beina tak-
mörkun fjölda nýbygginga eða stöðvun á
byggingu nýrra skipa.
3. Fiskiþing ályktar að þar sem verulegur
hluti af tekjum Fiskveiðasjóðs kemur frá
sjávarútvegi, verði ekki lengur við það
unað að útvegurinn og fiskvinnslan eigi
ekki fulltrúa í stjórn sjóðsins.
4. Fjárhagsnefnd leggur til að eftirfarandi
tillögur Fjórðungssambands Norðlendinga
verði vísað til stjórnar Fiskifélagsins.
1. Fjórðungsþing fiskideildanna í Norð-
lendingafjórðungi haldið á Akureyri 1.
nóv. 1975 samþykkir að óska eftir við
Fiskifélag íslands, að það gangist fyrir
athugun á fjármagnsfyrirgreiðslu við-
skiptabanka og fjárfestingarsjóða við
fyrirtæki í sjávarútvegi, bæði veiðum
og vinnslu, eftir útgerðarstöðum og
landshlutum og birti samanburðar-
skýrslu í Ægi, svo fljótt sem tök eru á-
2. Fjórðungsþing fiskideilda í Norðlend-
ingafjórðungi haldið á Akureyri 1. nóv.
1975, telur brýna nauðsyn bera til að
fiskkaupendum verði gert skylt að
tryggja útgerðarmönnum greiðslu 3
afla innan óeðlilega langs tíma, og hrá-
efnisskuldir fái sama forgang og vinnu-
laun.
Síldveiðar
34. Fiskiþing fagnar þeim árangri, sem
náðst hefur til þessa með friðunaraðgerðum
þeim á íslenzku Suðurlandssíldinni, sem
ákveðnar voru í byrjun árs 1972 og telur að
veiðarnar í haust hafi sannað nauðsyn þess-
ara friðunaraðgerða.
í þessu sambandi lýsir Fiskiþing yfir eftir-
farandi:
1. Fiskiþing styður bær tillögur Hafrann-
sóknarstofnunarinnar, sem fram voru lagð'
ar á þinginu, um að hámarksafli Suður-
landssíldar árið 1976 verði bundinn við
15.000 lestir og að lágmarksstærð síldar.
sem leyft verði að veiða, verði hækkuð * 1 2
27 cm.
2. Þá styður Fiskiþing einnig þær tillögur Haí'
rannsóknarstofnunar að veiðar verði ein'
RAFDRIFIN BRYNI
fyrir fiskvinnslustöövar
fiskiskip og báta
ÞaÖ er ekki ástæðulaust, að
MC rafdrifnu brýnin eru
óðum að leysa gamla
hverfisteininn af hólmi um
allt land, því að þau eru
MARGFALT FLJÓTVIRKARI
og AUKA ENDINGU
HNIFANNA:
Fyrir 110 og 220 volt.
Brýning tekur aðeins 1—2
mínútur.
Stærð aðeins 25x20x15 cm.
Einnig: Hausingar hnífar,
flökunarhnífar, flatnings-
hnífar.
MO> ÁRNIÓLAFSSON &CO.
SÍMI40088
52 — Æ GI R