Ægir - 15.02.1976, Blaðsíða 26
NÝ FISKISKIP
Sólfaxi SU 12
í júlí á s.l. ári afhenti Tré-
smiðja Austurlands h.f. Fá-
skrúðsfirði 27 rúmlesta fram-
byggt eikarfiskiskip, nýsmíði
nr. 34 hjá stöðinni, sem hlaut
nafnið Sólfaxi SU 12. Eigandi
skipsins er Eljan h.f. Eski-
firði.
Fremst í skipinu, undir þil-
fari, er lúkar með 6 hvílum
og eldunaraðstöðu, en þar fyr-
ir aftan vélarúm, fiskileit með
áluppstillingu og skuthylki
aftast, en þar eru brennslu-
olíugeymar og stýrisvél.
Þilfarshús úr áli er fram-
antil á skipinu og nær það að
b.b.-síðu. Stýrishús er fremst
í þilfarshúsi, þar fyrir aftan
er skipstjóraklefi, en salerni
er í b.b.-síðu.
Aðalvél skipsins er Volvo
Penta, gerð TAMD 120 A, 300
hö við 1800 sn/mín. Við vél-
ina er niðurfærslugír frá Twin
Disc, gerð MG 514, og skrúfu-
búnaður frá Marine Propul-
sion, gerð J-14-1200 B. Skrúfa
er 3ja blaða, þvermál 1200
mm. Framan á aðalvél er
Marco aflúttak (1:1) og við
það tengd Denison TDC 31-17
vökvadæla fyrir vindukerfi.
Rafall á aðalvél er frá Alter-
nator h.f., 6.5 KW. Hjálpar-
vél er Farymann, gerð A10,
11 hö við 3000 sn/mín og við
hana 6.5 KW rafall frá Alter-
nator h.f. Rafkerfi skipsins er
24 V jafnstraumur. Stýrisvél
er frá K & L Marine Equip-
ment, gerð KLH 100, snún-
ingsvægi 310 kgm. Vindubún-
aður er vökvaknúinn (há-
þrýstikerfi) og er um eftir-
farandi vindur að ræða: Tog-
vindu frá Vélaverkstæði Sig.
Sveinbjörnssonar h.f. og línu-
vindu og bómuvindu frá Rapp.
Togvinda er af svonefndri 5
t gerð með tveimur togtroml-
um, löndunartromlu og kopp-
um. Togátak vindu á miðja
tromlu 2.2 t og tilsvarandi
vírahraði 70 m./mín. Línu-
vinda er af gerðinni LS 240,
2 t. Færavindur eru af gerð-
inni Elektra Hydro, vökva-
drifnar, og eru 8 talsins.
Helztu tæki í stýrishúsi:
Ratsjá:
Furuno FRC 40, 64 sml.
Miðunarstöð:
Furuno FDA-1.
Sjálfstýring:
Sperry, gerð 8T.
Dýptarmælir:
Simrad EL.
Dýptarmælir:
Furuno Universalgraph,
gerð FUV — 11 — BF,
með sjálfritara og mynd-
sjá.
Talstöð:
Skanti, gerð TRP 4000,
400 W SSB.
Örbylgjustöð:
ISR, gerð AP 759 DK.
Skipstjóri á Sólfaxa SU er
Einar Eyjólfsson og frarn-
kvæmdastjóri útgerðar Guð-
jón Hjaltason.
Rúmlestatala............................... 27 brl.
Mesta lengd..............................17.07 m
Lengd milli lóðlína......................15.40 m
Breidd (mótuð).........................4.34 m
Dýpt (mótuð)...........................1.84 m
Brennsluolíugeymar.....................4.2 m3
Ferskvatnsgeymir.......................0.8 m3
Áætlun Hafrann-
sóknastofnunar-
innar.
Framli. af hls. 41.
sama útbúnaði og flotinn, sem
á að nýta við veiðnarnar, þeg-
ar þar að kemur.
Á það má einnig benda, að
líklegt er að fiskiskipinu vegni
betur við tilraunirnar, einnig
af þeim sökum, að það gefur
sig ekki að öðru, en rann-
sóknarskipunum er ætlað í
hverjum leiðangri að sinna
öðrum verkefnum jafnframt,
oft óskyldum. Stundum gæti
því hafrannsóknamönnunum
fundist þeir vera að stela tíma
frá mikilsverðum rannsóknar-
störfum, sem þeir áttu að
sinna í sama leiðangri. Seiða-
rannsóknir og veiðitilraurd1
eru mjög ólík verkefni og þaí'
getur reynzt erfitt í þe.ssu
efni sem öðrum að þjóna
tveimur herrum þannig a®
báðum líki vel. Af þeirri áaetl'
un, sem Hafrannsóknastofn-
unin hefur gefið út fyrir lDTö
er glöggt, hvorum herranuT
hún telur sér og með réttu
skyldara að þjóna.
60 — Æ GI R