Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1976, Blaðsíða 25

Ægir - 01.07.1976, Blaðsíða 25
in er 4 sjómílur utan við viðmiðunarlínu. C4. Frá línu réttvísandi austur frá Hvíting- um (vms 19) að 18°00' v.lg. er skipum sem eru 26 metrar að lengd eða minni heimilt að veiða 1. maí til 1. mars með botnvörpu og flotvörpu utan línu, sem dregin er 4 sjómílur utan við viðmiðun- arlínu. ^5. Frá línu réttvísandi austur frá Hvíting- um (vms 19) að 18°00' v.lg. er skipum sem eru 26 metrar að lengd eða minni heimilt að veiða 1. maí til 1. mars með botnvörpu og flotvörpu utan línu, sem dregin er í 3ja sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins. 6- Frá 18° v.lg. að línu réttvísandi suður frá Lundadrang (vms 28) er skipum, sem eru 39 metrar að lengd eða minni, heim- ilt að veiða allt árið með botnvörpu og flotvörpu utan línu, sem dregin er 4 sjó- niílur utan við viðmiðunarlínu. Frá 18° v.lg. að línu réttvísandi suður frá Lundadrang (vms 28) er skipum, sem eru 26 metrar að lengd og minni, heimilt að veiða allt árið með botnvörpu og flot- vörpu utan línu, sem dregin er í 3ja sjó- mílna fjarlægð frá fjörumarki megin- landsins. • Frá línu réttvísandi austur frá Hvíting- um (vms 19) að línu rétttvísandi suður af Hvalnesi (64°24'1 n.br., 14°32'5 v.lg.), er öllum skipum heimilt að veiða með botnvörpu og flotvörpu utan línu, sem dregin er 4 sjómílur utan við viðmiðun- arlínu á tímabilinu frá 1. maí til 31. des- ember. ^L^JÐURLAND. Utan línu, sem dregin er úr punkti í 12 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Lundadrang (vms 28) í punkt í 12 sjó- fmlna fjarlægð réttvísandi suður frá Surtsey (63°17'6 N, 20°36'3 V), er heim- Lt að veiða allt árið með botnvörpu og t>2 flotvör_Pu- Utan línu, sem dregin er úr punkti í 4ra sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Lundadrang (vms 28) í punkt í 4ra sjó- mílna fjarlægð réttvísandi suður frá Surtsey, eru skipum, sem eru 39 metrar að lengd og minni, heimilar veiðar með botnvörpu og flotvörpu allt árið. D3. Utan línu, sem dregin er úr punkti í 4ra sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Surtsey (63°17'6 N, 20°36'3 V) í punkt í 5 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Geirfugladrang, er heimilt að veiða allt árið með botnvörpu og flotvörpu. D4. Á tímabilinu 1. ágúst—31. desember er heimilt að veiða með botnvörpu og flot- vörpu utan línu, sem dregin er úr punkti í 4ra sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Lundadrang (vms 28) í punkt í 4ra sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Surtsey (63°17'6 N, 20°36'3 V). D5. Frá línu réttvísandi suður frá Lunda- drang (vms 28) að línu réttvísandi suð- vestur frá Reykjanesaukavita (vms 34) er skipum, sem eru 39 metrar að lengd og minni, heimilt að veiða með botnvörpu og flotvörpu á tímabilinu 16. maí—31. desember utan línu, sem dregin er 4 sjó- mílur utan við viðmiðunarlínu. D6. Frá línu réttvísandi suður frá Lunda- drang (vms 28) að línu réttvísandi suð- vestur frá Reykjanesaukavita (vms 34) er skipum, sem eru 26 metrar að lengd eða minni, heimilt að veiða allt árið með botnvörpu og flotvörpu utan línu, sem dregin er í 3ja sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins. D7. Öll veiði er bönnuð allt árið á svæði, þar sem vatnsleiðsla og rafstrengur liggur milli Vestmannaeyja og meginlandsins. Svæði þetta takmarkast að austan af línu, sem dregin er þannig, að Bjarnar- ey að vestan beri í Elliðaey að austan, og að vestan takmarkast það af línu, sem dregin er þannig, að austurkant Ysta- kletts og Faxaskersvita beri saman. Enn fremur er öll veiði bönnuð á svæði, þar sem sæsímastrengir liggja frá Vest- mannaeyjum til útlanda, á 200 metra belti báðum megin við strengina. D8. Skipum, 26 m og minni, er heimilt að veiða með botnvörpu á tímabilinu 15. febrúar til 16. apríl upp að suðurströnd meginlandsins á svæði sem takmarkast að austan af línu sem dregin er til lands úr Faxaskersvita í Vestmannaeyjum um austurbrún Ystakletts og að vestan af línu réttvísandi suðvestur frá Þjórsárósi (63°46'5 n.br., 20°49'0 v.lg.). Æ GIR — 235

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.