Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 56
/ reynzluferö með veiðarfœri 2. maí.
Framarlega á efra þilfari er þilfarshús fyrir
miðju, þar sem eru íbúðir og klefi fyrir ísvél, en til
hliðar við það eru gangar fyrir bobbingarennur,
opnir að aftan. Togþilfar skipsins er aftan við um-
rætt þilfarshús og tengist áðurnefndum göngum.
Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu og
greinist hún í fjórar bobbingarennur, sem ná fram
að stefni, tvær í hvorum gangi, þannig að unnt er
að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til
veiða. Aftarlega á togþilfari, til hliðar við vörpu-
rennu, eru síðuhús (skorsteinshús, verkstæði, veið-
arfærageymslur) með stigagöngum niður á neðra
þilfar. Yfir afturbrún skutrennu er toggálgi, en yfir
frambrún skutrennu er bipodmastur, sem gengur
niður í skorsteinshúsin.
Hvalbaksþilfar er heilt frá stefni og aftur fyrir
afturbrún þilfarshúss, en þar greinist það í tvennt
og liggur meðfram báðum síðum aftur að síðuhús-
um. Aftarlega á heilu hvalbaksþilfari er brú skips-
ins, sem hvílur á um 120 cm hárri reisn. Á brúar-
þaki er ratsjármastur m.m., en á afturhlið brúar-
þaks eru hífingablakkir. Á framlengdu hvalbaks-
þilfari, s.b.- og b.b.-megin, eru hús fyrir togvindu-
mótora og skýli fyrir togvindurnar.
Vélabúnaður:
Aðalvél er frá MAK, sex strokka fjórgengisvél
með forþjöppu og eftirkælingu. Vélin tengist nið-
urfærslugír frá Reintjes og skiptiskrúfubúnaði frá
Hjelset. í skipinu er búnaður til brennslu á svart-
olíu með seigju allt að 600 sec Rl.
Tœknilegar upplýsingar (aðalvél
m/skrúfubúnaði):
Gerðvélar .......
Afköst .................
Gerð niðurfærslugírs ....
Niðurgírun .............
Gerð skrúfubúnaðar ....
Efni í skrúfu ..........
Blaðafjöldi ............
Þvermál ................
Snúningshraði...........
Skrúfuhringur...........
6M 453 AK
2400 hö við 600 sn/mín
VA 2740-6860 K
3.684:1
RGA 77/500
NiAl-bronz
4
2900 mm
163 sn/mín
Poul Ree
Á niðurfærslugír eru tvö aflúttök, 570 hö við
1500 sn/mín hvort, og við þau eru beintengdir tveir
riðstraumsrafalar frá Brown Boveri & Cie (BBC),
gerð MWOX 750-4, skráðir 544 KW (680 KVA),
3x380 V, 50 Hz, álagsvörn við 420 KW.
í hjálparvélarými, s.b.-megin aftast á milliþ'l'
fari, er ein hjálparvél frá MWM, gerð TBD 604-
L6, sex strokka fjórgengisvél með forþjöppu og
eftirkælingu, sem skilar 543 hö við 1500 sn/mín.
Vélin knýr beintengdan riðstraumsrafal frá Brown
Boveri & Cie af gerð MWOX 750-4, skráður 544
KW (680 KVA), 3x380 V, 50 Hz, álagsvörn við 400
KW.
Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Bruss-
elle, gerð HMSCE 165 R, snúningsvægi 17000
kpm. Stýrisvélin tengist stýrishring.
í skipinu eru tvær skilvindur frá Alfa Laval,
önnur af gerðinni MAPX 204 TGT-24, sem er
sjálfhreinsandi skilvinda fyrir svartolíu, en hin af
gerðinni MAB 204 S-24 og er fyrir smurolíu. Fyrir
gasolíukerfið er ein Racor skilja af gerð 800 A-12-
Ræsiloftþjöppur eru tvær frá J.P. Sauer & Sohn a
gerð WP 32 L-100, afköst 31.5m3/klst við 30
kp/cm2 þrýsting hvor þjappa. Fyrir vélarúm og
408 — ÆGIR