Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 58
Blóðgunarker og aðgerðaraðstaða á vinnuþilfari.
úrgang, og safngeymar fyrir lifur, sem flutt er með
tannhjóladælu í tvo birgðageyma, aftast í fremra
vinnslurými. Eftir aðgerð flyzt fiskurinn með
tveimur færiböndum, þverskips, að þvottavél frá
Kletti h/f, sem er aftast í fremra vinnslurými, og
þaðan með færibandi að fiskilúgu. Fyrir karfa er
sérstakt færiband, sem flytur frá fiskmóttöku,
milli blóðgunarkera, að þvottavél. Öll færibönd
eru vökvaknúin.
Hluti fremra vinnslurýmis er búin fyrir geymslu
á fiski í kössum, rými fyrir um 350 90 1 kassa, og er
rýmið búið Kuba SHAE 12 kæliblásara.
í skipinu eru tvær sjóísvélar frá Stálver af gerð-
inni Seafarer TE16, afköst 6.5 t á sólarhring hvor
vél. ísvélarnar eru í sérstökum klefa aftast í þilfars-
húsi á efra þilfari. ísgeymsla, um 20 m3 að stærð,
er b.b.-megin aftast í íbúðarými á neðra þilfari, og
er ísinn fluttur þaðan með sniglum í lest.
Loft vinnuþilfars er einangrað með polyurethan
og klætt með stálplötum, en síður eru óeinangr-
aðar.
Fiskilest:
Fiskilest er um 660 m3 að stærð og gerð fyrir
fiskkassa. í lest er unnt að koma fyrir 4200 90 1
fiskkössum. Lestin er einangruð með polyurethan
og klædd að innan með 4-5 mm stálplötum.
Kæling í lest er með kælileiðslum í lofti lestar.
Rafdrifið færiband er í lest til að flytja fisk og ís.
Tvö lestarop, 1800 x 2500 mm og 2500 x 2500 mm,
eru aftantil á lestinni með stálhlerum á lömum,
sem búnir eru fiskilúgum. Á efra þilfari, upp af
lestarlúgum á neðra þilfari, eru tvær samsvarandi
losunarlúgur með álhlerum slétt við þilfar. Fyrir
affermingu á kassafiski er krani.
Vindubúnaður, losunarbúnaður:
Aðalvindubúnaður skipsins er frá Brusselle, og
er um að ræða tvær togvindur, tvær tvöfaldar
grandaravindur, eina tvöfalda hífingavindu, tvær
hjálparvindur, flotvörpuvindu og akkerisvindu.
Togvindur eru rafknúnar, en aðrar Brusselle vindur
vökvaknúnar (háþrýstikerfi). Annar vindu- og los-
unarbúnaður er vökvaknúinn, þ.e. fjórar litlar
hjálparvindur og losunarkrani, og rafknúin kapal-
vinda fyrir netsjá.
Aftarlega á framlengdu hvalbaksþilfari, s.b. og
b.b.-megin, eru tvær togvindur (splittvindur) af
gerð 3602 S.
Tœkrtilegar stœrðir (hvor vinda):
Tromlumál ............. 520mm°x 1540mm°x
1430mm
Víramagn á tromlu ..... 1400 faðmar af 3 VT’ vír
Togátak á miðja tromlu .. 10.0 t
Dráttarhr. á miðja tromlu 100 m/mín
Rafmótor............... BBC, GN 315-M34-F
Afköst mótors ......... 250 hö við 820 sn/mín
Spenna, straumur....... 380 V, 520 A
Fremst í hvalbak eru tvær grandaravindur at
gerð HL8.8-2. Hvor vinda er með tveimur sjálf-
stæðum tromlum (457mmDx 1150mm°x 380mm) og
knúin af tveimur Brusselle vökvaþrýstimótorutn,
togátak á tóma tromlu (485mm°) 2x7.6 t og tilsvar-
andi dráttarhraði 40 m/min.
Á hvalbaksþilfari, aftan við brú, er ein tvöföld
hífingavinda af gerð HL15-2. Vindan er með
tveimur sjálfstæðum tromlum (456mm°x 950mm‘’x
150mm) og knúin af tveimur Brusselle vökva-
þrýstimótorum, togátak á tóma tromlu (485mm1’)
2x13.0 t og tilsvarandi dráttarhraði 41 m/mín.
Aftast á togþilfari, s.b.- og b.b.-megin við skut-
rennu, eru tvær hjálparvindur af gerðinni HL-6.5,
önnur fyrir losun á poka og hin til að draga vörpu
út. Hvor vinda er með útkúplanlegri tromlu
(470mmax 735mm°x 300mm) og kopp og knúin at
Brusselle vökvaþrýstimótor, togátak á tóma
tromlu 5.6 t og tilsvarandi dráttarhraði 54 m /mín-
Fremst á togþilfari, aftan við hvalbak, er
flotvörpuvinda af gerð NTL-8, knúin af tveimut
410 — ÆGIR