Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 20

Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 20
„Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að loðnubátum verði heimilt að veiða allt að 30 þús. tonn af þorski á þessu ári. Ákvörðun þessi miðast við að 37 bátar fari til þorskveiða, ýmist til netaveiða eða togveiða, en fari færri bátar til þorskveiða, lækkar heildarþorskkvóti loðnu- bátanna hlutfallslega. Netaveiðar loðnubáta mega hefjast 10. febr. n.k. og skulu útgerðarað- ilar sækja um leyfi til veiðanna til ráðuneytisins fyrir 6. febrúar n.k. Um netaveiðar loðnubáta gilda sömu reglur og um netaveiðar annarra báta, að öðru leyti en því að hverjum bát er óheimilt að veiða meira en 800 tonn af þorski og er það magn miðað við allt árið. Sérreglur þær sem gilt hafa undanfarnar tvær vertiðar um netaveiðar loðnubáta eru felldar niður. Loðnubátar þeir, sem fara til togveiða mega einnig hefja veiðar 10. febr. n.k. Loðnubátarnir falla allir undir ,,skrapdagakerfið“ án tillits til lengdar báta og skulu þeir taka a.m.k. 25 skarp- daga á tímabilinu 10. febr. til 30. apríl n.k. Að öðru leyti gilda sömu reglur um veiðar þessara báta og um veiðar skuttogara. Komi til aukningar loðnukvótans frá því sem þegar hefur verið ákveðið, verður þeirri aukn- ingu skipt milli einstakra loðnubáta, sem ekki fá aftur á móti leyfi til netaveiða. Taki togskip aftur á móti þátt í þeim loðnuveiðum, telst sá timi ekki ,,skrapdagar“, sem þær veiðar taka.“ Og hinn 28. febrúar gaf sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð nr. 133 um viðauka við reglugerð nr. 425, 11. ágúst 1980, um veiðar á loðnu haustvertíð 1980 og vetrarvertíð 1981, sbr. reglugerð nr. 593/1980. Samkvæmt hinni nýju reglugerð var 28 bátum veittur viðbótarkvóti, frá 1. marz að telja, til frystingar og hrognatöku, sem nam 60.130 tonn- um, og skiptist þetta magn eftir sömu reglum og fyrr (sjá 5. tbl. Ægis 1980). í febrúarlok höfðu 28 skip af 40 fyllt fyrri kvóta sinn og hætt veiðum. Þá var heildaraflinn frá ára- mótum um 86.250 tonn á móti 291 þús. tonnum á sama tíma í fyrra. í byrjun marsmánaðar var loðnugangan komin vestur undir Hrolllaugseyjar og gekk hægt vestur með landinu. Fyrstu daga mánaðarins var nokkur ótið og fáir bátar komnir á miðin, en þeim fór ört fjölgandi, því eins og áður er um getið fengu 28 bátar viðbótarkvóta. Hinn 9. mars fannst einnig loðna vestan við Vestmannaeyjar (svæði 320) og næstu daga var góð veiði bæði á því svæði svo og við Ingólfshöfða. Besti veiðidagur mánaðarins var þann 15., en þá fengu 16 bátar um 9.690 tonn. Er líða tók á mánuðinn fór skipum ört fækkandi, enda höfðu þau þá fyllt kvóta sinn og í lok mánaðarins voru aðeins tvö skip er áttu ófylltan kvóta. Um mánaðamótin var loðnan komin vestur undir Reykjanes. Síðasti loðnufarmurinn á vertíð- inni barst á land þann 8. apríl og þar með lauk ver- tíðinni að þessu sinni. Heildaraflinn varð samtals 155.953 tonn, 42 Ljósm.: Friðþjófur. Ljósm.: Friðþjófur. 372 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.