Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 50

Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 50
stjórn á þorskveiðum haft truflandi áhrif hvað þetta varðar. Dæmi um þetta má nefna að 1980 urðu netabátar á Suður- og Suðvesturlandi að hætta veiðum 30. apríl, en 1981 8. maí. Hins vegar var togbátum gert að hætta veiðum frá 1.—7. maí, bæði árin. Að afloknu þessu banni hefur nokkuð verið um það að netabátar hafi skipt yfir á tog- veiðar. Öll þessi atriði hafa á samverkandi hátt gert ill- mögulegt að draga línu um vertíðarskil á síðustu árum—skil, þar sem tölur um aflamagn gæfu við- hlýtandi samanburð. Mánuðina janúar-apríl 1981 var heildarbotn- fiskafli báta á svæðinu alls 136.822 tonn, en var sömu mánuði 1980 126.187 tonn. Þorskur í afla bátanna var nú 112.219 tonn en var á sama tíma í fyrra 105.272 tonn. Heildarbotnfiskafli togara á svæðinu var fyrstu fjóra mánuði ársins 54.256 tonn en var sömu mánuði í fyrra 56.429 tonn. Þorskur í afla togara nú varð 24.144 tonn á móti 33.243 tonn í fyrra. Aflinn skiptist á einstakar verstöðvar þannig: Jan./apríl 1981 Jan./apríl 1980 Botnf. þar af Botnf. þar af tonn þorskur lonn þorskur Grindavík................ 32.348 27.044 26.670 22.040 Vestmannaeyjar........... 31.754 22.099 27.188 17.711 Þorlákshöfn.............. 27.824 21.318 22.554 16.957 Reykjavík................ 24.792 11.056 22.374 14.212 Keflavík................. 16.644 11.584 15.877 12.712 Sandgerði ............... 15.871 12.277 16.667 12.433 Akranes.................. 10.481 6.336 12.914 9.459 Ólafsvík.................. 9.939 9.184 11.407 10.861 Hafnarfjörður............. 9.365 4.153 10.150 6.277 Rif....................... 5.669 5.617 7.409 7.000 Grundarfjörður............ 4.063 3.382 6.232 5.754 Stykkishólmur............. 1.403 1.362 2.200 2.180 Stokkseyri.................. 377 352 106 103 Vogar....................... 336 315 638 602 Eyrarbakki.................. 312 284 233 214 Samtals 191.078 136.363 182.616 138.515 Eins og að framan sagði var netabátum leyft að veiða til 8. maí og voru aflabrögð þann tíma mjög góð. Vitað er að fram að þeim tíma höfðu 23 bátar á svæðinu aflað yfir 1000 tonn hver um sig. Afla- hæsti bátur til 8, maí var Jón á Hofi Þorlákshöfn með 1514,4 tonn. Skipstjóri Jón Björgvinsson. Hins vegar er vitað að einn þessara aflasælu báta fór á togveiðar 8.-15. maí og miðað við þann tíma varð aflahæsti bátur Þórunn Sverrisdóttir Vest- mannaeyjum með 1.539,3 tonn, skipstjóri Sigur- jón Óskarsson. Aflahæstu vertiðarbátar, miðað við 15. maí 1981: Tonn Þórunn Sveinsdóttir, Vestmannaeyjum . .. net/tog 1539,3 Jón á Hofi, Þorlákshöfn ............. net 1514,4 Höfrungur III, Þorlákshöfn .......... net 1463,7 Friðrik Sigurðsson, Þorlákshöfn...... net 1460,1 Suðurey, Vestmannaeyjum.............. net 1418,5 Hafberg, Grindavík .................. net 1323,4 Vörður, Grindavík.................... net 1310,0 Jóhann Gíslason, Þorlákshöfn......... net 1284,0 Geirfugl, Grindavík ................. net 1249,2 Skúmur, Grindavík.................... net 1247,3 Glófaxi, Vestmannaeyjum.............. net 1242,3 Álsey, Vestmannaeyjum................ net 1236,0 Valdemar Sveinsson, Vestmannaeyjum ... 1200,1 Gjafar, Vestmannaeyjum.......................... 1145,7 Hrungnir, Grindavílk................. 1116,8 Arnar, Þorlákshöfn ............................. 1074,8 Gissur, Þorlákshöfn............................. 1060,7 Gandi, Vestmannaeyjum........................... 1032,2 Þorsteinn, Grindavík............................ 1030,4 ísleifur IV, Þorlákshöfn........................ 1015,9 Bjarnarey, Vestmannaeyjum....................... 1010,6 Sandafell, Grindavík ........................... 1008,9 Bylgja, Vestmannaeyjum.......................... 1007,2 Aflahæsti skuttogarinn á svæðinu miðað við 1. maí varð Snorri Sturluson, Reykjavík með 2.186,2 tonn, skipstjóri Ólafur Örn Jónsson og næst- hæstur varð Haraldur Böðvarsson Akranesi, með 1.910,0 tonn, skipstjóri Kristján Pétursson. Vestfirðir. Eftirfarandi yfirlit um gæftir og aflabrögð Vest- firðinga á vetrarvertíðinni er skráð af Jóni Páli Halldórssyni í mánaðarlegum skýrslum hans til Fiskifélagsins: „Tíðarfar var mjög óstöðugt í janúar og sjósókn erfið af þeim sökum. Sjór var óvenjulega kaldur útaf Vestfjörðum, enda ísinn skammt undan, og allt veiðisvæðið ákaflega lifvana. Tók fiskur þvi vel beitu og var línuafli góður eftir því, en afli tog- ara þeim mun lakari. Patreksfjarðarbátar fengu sinn afla aðallega djúpt vestur af Látrabjargi, en bátar frá Djúpi og nyrðri fjörðunum sóttu mest i Álkantinn og á austursvæðið. Veðrátta var mjög erfið til sjávarins allan 402 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.