Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 22

Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 22
Hin árlega yfirlitsskýrsla Fiskifélags íslands um framvindu og gang mála sjávarútvegsins, ,,Út- vegur 1980“ er komin út. Hagdeild Fiskifélagsins sér um útgáfuna og er þetta í fimmta sinn sem hún kemur út og sem fyrr í tveimur heftum, samanlagt 460 blaðsíður og kosta bæði heftin 200 kr. til fastra áskrifenda, en 250 kr. í lausasölu. í formála segir að reynt sé að haga efnisvali á þann hátt að það veiti sem víðtækastar upplýs- ingar, en þó sé aldrei hægt að svara öllum þeim spurningum sem upp kunna að koma og að við- leitni í þá átt hefði að öllu jöfnu óviðráðanlegt pappírsflóð í för með sér. • Þorskafli minnkaði í Norðaustur-Atlantshafi um 11% milli áranna 1978 og 1979, eða úr 1.645.739 tonnum í 1.466.530 tonn, en aukning þorskveiða í Norðvestur-Atlantshafi um 15%, eða úr 488.133 tonnum í 561.392 tonn, olli því að svip- að heildarmagn af þorski var veitt í Norður-At- lantshafinu þessi tvö ár. Western Marine Electronics, þekktara undir nafninu ,,Wesmar“, hefur hafið framleiðslu á rat- sjám sem þeir hafa gefið nafnið “Omnicolor radar”. í samanburði við hinar hefðbundnu rat- sjár sem hafa verið á markaðnum fram til þessa, er hér um gjörbyltingu á þessu sviði að ræða, allt frá sjónskífunni og upp í loftnet og er þetta afrakstur 10 ára rannsókna og tilrauna. í stað sjónskífunnar er kominn skjár, samskonar og á venjulegu sjón- varpstæki, og með örtölvutækni er endurvörpum ratsjárinnar breytt í stöðuga mynd sem birtist á skjánum i eðlilegum litum. Örtölva tengd rat- sjánni, stjórnar öllum aðgerðum hennar. Ekkert er því til fyrirstöðu að hafa eins mörg sjónvarpstæki tengd ratsjánni og verkast vill. Myndin sem birtist á skjánum er sögð skýr og þó að ljós eða önnur lýsing sé í grennd við skjáinn þá deyfir það ekki myndina. Með litlu fjarstýrðu tæki sem menn halda á í hendi sér, svokölluðum “Video Marker”, eru fjarlægðir mældar og miðanir teknar á skján- um. Völ er á 10 fjarlægðarkvörðum, frá 0,25 upp í 80 sjómílur. Loðnuveiðar Norðmanna gengu mjög vel s.l. vetur, þegar á sjó gaf, en þetta var einhver sú erfið- asta vertíð sem um getur, umhleypingasöm sam- fara langvarandi og hörðum kuldaköstum. Alls tóku 207 nótaveiðiskip og 110 togarar þátt í loðnuveiðunum að þessu sinni og öfluðu þau um 800.000 tonn, eða 8,2 millj. hektólítra, að verðmæti um 400 millj.n.kr. Mjög mikið magn af stórri og gæðamikilli loðnu fannst á miðunum og var vand- inn minnstur hjá veiðiskipunum að ná hinum leyfi- lega aflakvóta sinum, ef gæftaleysi hamlaði ekki veiðunum. Mestur afli sem á land barst á einum degi var rúmlega 38.000 tonn sem 75 skip lönduðu. Bíða Norðmenn nú vongóðir sumarloðnuveið- anna í Barentshafinu og er gert ráð fyrir að þeir fái að veiða þar um 420.000 tonn, en Sovétmenn um 280.000 tonn. Norskir síldarsjómenn og síldarverkendur hafa vaxandi áhyggjur vegna fyrirsjáanlegrar hættu á að hinir hefðbundnu síldarmarkaðir þeirra gangi þeim úr greipum vegna áframhaldandi veiðibanns á norsk-íslenska síldarstofninum, eða norsku vorgotssíldinni, eins og Norðmenn vilja orðið kalla þennan síldarstofn. Telja síldarsjómenn að hæfi- legt sé að leyfa veiðar á um 20.000 tonnum úr þess- um stofni í ár. Leyfðar hafa verið veiðar á 617.200 tonnum af loðnu á vertíðinni sem hefst 10. ágúst n.k. og líkur veturinn 1982. Er þessu magni skift niður á 52 374 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.